Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

bann við námavinnslu á hafsbotni.

798. mál
[16:06]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Ég vona að við náum eitthvað að draga hæstv. ráðherra frá Skerjafirðinum í umræðum í dag. Þetta er þriðja fyrirspurnin í röð þar sem hæstv. ráðherra fjallar um Skerjafjörðinn þótt aðeins sú fyrsta hafi verið fyrirspurn sem sneri að því svæði. Ég er hér ekki að spyrja um strandlengjuna í kringum Reykjavík. Ég er að spyrja út í hafsbotninn, djúpsjávarhafsbotn, það hvernig alþjóðasamfélagið þarf að ná saman um vernd vistkerfa og líffræðilegrar fjölbreytni þar og í hvaða lið íslensk stjórnvöld ætli að skipa sér. Þó að þau hafi ekki setið þennan fund Alþjóðanáttúruverndarsambandsins, IUCN, árið 2021, þar sem ályktað var um að setja tímabundið bann við öllum hugmyndum um námavinnslu á hafsbotni, þá eru íslensk stjórnvöld aðili að Alþjóðahafsbotnsstofnuninni sem fundar eftir tvo mánuði. Um það snýst málið. Ætlar hæstv. ráðherra að beita sér þar eða ætlar ríkisstjórnin að beita sér þar fyrir því að tímabundið bann verði sett við námavinnslu á hafsbotni á grundvelli varúðarsjónarmiða?