Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

bann við námavinnslu á hafsbotni.

798. mál
[16:07]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Það er alveg á hreinu að það mun enginn, hvorki hv. þingmaður né neinn annar, koma mér frá Skerjafirði. Það er bara ekki að fara að gerast. Og það er aðkallandi mál. Það vakti athygli mína og örugglega þingheims alls að hv. þingmaður — það var hávær þögn. Það er áhugavert að heyra það þegar þingmenn koma hér upp og spyrja um hluti sem svo sannarlega er ekki neitt að gerast í — það er sjálfsagt að fara yfir þessi mál og ég skal bara glaður ræða þau hvar og hvenær sem er, en á sama tíma og þeir segjast hafa áhyggjur af líffræðilegri fjölbreytni, áhyggjur af loftslagsmálum og geta beitt sér þegar þess þarf, þegar umhverfisslys er í uppsiglingu, þá gera þeir það ekki. Ef hv. þingmaður er einhverra hluta vegna ekki búinn að kynna sér þessar umsagnir um Nýja Skerjafjörðinn, sem er virkilega aðkallandi mál og það er af fullri alvöru sem ég er að ræða þetta við hv. þingmann vegna þess að þetta er stórmál sem skiptir máli, þá hvet ég hann til að gera það því að hv. þingmaður er áhrifamaður í íslenskum stjórnmálum, áhrifamaður í þingflokki Pírata, forystumaður hjá Pírötum á landsvísu. Ég vonast til þess að hv. þingmaður beiti sér til að koma í veg fyrir þetta umhverfisslys.