bann við námavinnslu á hafsbotni.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra sagðist glaður ræða hvar og hvenær sem er um efni fyrirspurnarinnar sem ég lagði fyrir hér rétt áðan, hvar og hvenær sem er nema einmitt í umræðum um fyrirspurnina. Þá vill hann bara tala um Skerjafjörð.
Frú forseti. Ég bið þig um að veita mér smá liðsinni ef hæstv. ráðherra lendir í sama díki hér á eftir þegar ég ætla að spyrja hann um bann við olíuleit og þegar ég ætla að spyrja hann um — hvað var þriðja málið? (LE: Orkusáttmálann.) Orkusáttmálinn, alþjóðlegi orkusáttmálinn. Ef hæstv. ráðherra sér einhvern Skerjafjarðarvinkil á þessum málum þá bið ég virðulegan forseta að grípa í taumana þannig að við getum átt umræður hér um efni þeirra mála sem liggja fyrir á dagskrá. Og ef hæstv. ráðherra vill ræða Skerjafjörðinn eitthvað sérstaklega þá hefur hann nú alveg verkfæri til þess að komast hér á dagskrá með sérstakri umræðu þess efnis og henni skal ég glaður taka þátt í.