bann við olíuleit.
Frú forseti. Einu sinni var ég á fundi í Kaupmannahöfn þar sem ég sá hæstv. forsætisráðherra lesa upp nánast orðrétt setningu úr stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, með leyfi forseta: „Ríkisstjórnin mun ekki gefa út nein leyfi til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands.“ Ég held að það hafi legið við að fólk táraðist bara, það var næstum standandi lófatak á þessum fundi. Fólk var mjög ánægt með þá forystu sem Ísland sýndi í því að átta sig á orðnum hlut, að átta sig á því að frekari leit að olíu heyrði til fortíðar.
Þetta er uppáhaldssetningin mín í stjórnarsáttmálanum og kemur kannski engum á óvart. Sjálfur lagði ég nokkrum sinnum fram frumvarp þessa efnis hér á þingi. Síðast var því vísað til ríkisstjórnar í júní 2021 þannig að mikil var gleði mín þegar þessi setning birtist haustið 2021 í stjórnarsáttmálanum. Enn meiri varð hún þegar frumvarp þessa efnis birtist á endurskoðaðri þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar með áætlaðan framlagningardag í mars 2022. Enn þá meiri þegar frumvarpið birtist svo loksins í maí 2022. Ég var pínu svekktur að ekki náðist að mæla fyrir því en batt miklar vonir við að það myndi líta dagsins ljós bara á fyrstu dögum haustþings þessa vetrar.
Það hefur hins vegar ekki náð að berast okkur og mig langar að spyrja ráðherrann: Hvers vegna ekki? Hvers vegna kom frumvarp um bann við olíuleit ekki til okkar í september eins og til stóð samkvæmt upphaflegri þingmálaskrá? Hvers vegna kom það ekki heldur fram í mars eins og stóð til samkvæmt uppfærðri þingmálaskrá? Og hvenær ætlar hæstv. ráðherra að leggja þetta frumvarp fram? Hvenær ætlum við formlega að banna olíuleitina sem aldrei verður? Það er ekki eins og við séum að banna eitthvað sem fullt af fólki er að gera úti í samfélaginu, við erum að banna eitthvað sem nokkur fyrirtæki voru að spá í að gera fyrir svona tíu árum en enginn er að gera í dag. Þetta er það sem við köllum lághangandi ávöxt á útlenskum fundum. Þetta er sú einfaldasta aðgerð sem íslensk stjórnvöld geta gert til að sýna á alþjóðavísu að olíuöldin sé að kveðja okkur, að sjálfbær og græn framtíð kalli á það að við með formlegum hætti bönnum olíuleit.