bann við olíuleit.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og hv. fyrirspyrjanda fyrir þessa mjög svo ágætu umræðu. Ég vildi bara koma hingað upp til að árétta þá afstöðu mína og okkar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði að það væri mikill sómi að því fyrir okkur að ganga svo til verks að hreinlega leggja blátt bann við olíuleit. Hún er, eins og kom fram í máli hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar, ekki fyrirhuguð hjá einu eða neinu fyrirtæki eins og staðan er í dag. Við vitum að bruni jarðefnaeldsneytis er ástæðan fyrir þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir sem heimssamfélag og ein leið til að sýna ábyrgð í því er að leggja blátt bann við því að við leitum hér að eða öflum olíu í íslenska landgrunninu.