Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

bann við olíuleit.

998. mál
[16:30]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Ég fæ kannski að byrja á Vestfjarðahringnum sem hæstv. ráðherra tók, fæ að víkka hann út yfir landið allt vegna þess að staðreynd málsins er sú að aðgerðir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur eru alls ekki að skila þeim árangri sem þær þurfa að gera í loftslagsmálum. Þvert á það sem þarf er losun að aukast ár frá ári. Það skiptir engu máli þó að ríkisstjórnin sé með einhver markmið um að hætta notkun jarðefnaeldsneytis. Það er engin tala, engin mæling, engin aðgerð sem stefnir í rauninni í þá átt. Hæstv. ráðherra kemur hingað ári eftir að hann lagði fram fullskapað frumvarp um að banna olíuleit og segir að það séu margar leiðir að því marki og að hann ætli að koma með eitthvert frumvarp í haust. Verður það þá annað frumvarp eða öðruvísi? Hvað var að þessu frumvarpi sem kom hérna í fyrra? Af hverju er svona erfitt fyrir stjórnarflokkana að setja bara punkt aftan við þetta ruglaða olíuævintýri sem átti að fara af stað, segja bara stopp? Það er hægt að skreyta sig með stjórnarsáttmálum endalaust en við vinnum með lög í þessu húsi. Við vinnum ekki með fyrirheit í stjórnarsáttmálanum, við vinnum með því að setja lög og reglur um það hvernig samfélag okkar þróast til framtíðar. Ef ríkisstjórnin ætlar að skilja jarðefnaeldsneytið eftir í fortíðinni þá þarf hún að setja lög um það frekar en að draga það ár frá ári. Það tækifæri hefði hún náttúrlega getað gripið fyrir mörgum árum þegar við lögðum hér fram frumvarp sem var vísað til ríkisstjórnar, þá hefði hún getað orðið einn af stofnfélögunum í aðgerðabandalagi ríkja um að enda gas- og olíuframleiðslu. Þá hefði hún getað talað af sannfæringu við rugludallana í Noregi og Bretlandi (Forseti hringir.) sem eru að opna hvern olíuborpallinn á fætur öðrum, þvert á það sem vísindin kalla á. Ísland hefði getað verið (Forseti hringir.) vinurinn sem segir stopp. Þá hefði Ísland getað beitt sér fyrir svæðisbanni við olíuleit á norðurslóðum (Forseti hringir.) til að vernda Norður-Íshafið. Af hverju ekki bara að gera þetta?