Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

bann við olíuleit.

998. mál
[16:33]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og þeim hv. þingmönnum sem tóku þátt í umræðunni. Það verður ekki neitt leyfi veitt til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands. Ríkisstjórnin mun ekki gera það. En það gerir ekkert fyrir loftslagsmarkmiðin okkar, það er ekki þannig. Það sem gerir eitthvað fyrir loftslagsmarkmiðin okkar er að við tökum út jarðefnaeldsneyti og setjum græna orku í staðinn. Það hefur nú reynst þrautin þyngri að fá suma flokka til að samþykkja leiðir til þess að ná þeim markmiðum. Ég vek athygli á rammanum. Það er grunnurinn að því að við ætlum að taka út jarðefnaeldsneyti, þá þurfum við græna orku í staðinn. Þannig að hér fer ekki alveg saman hljóð og mynd. Það hefur svo sannarlega náðst árangur þegar kemur að orkuskiptum, þriðju orkuskiptunum, þegar hver meðalbíll, miðað við meðalárið 2005 þegar voru yfir 300.000 ferðamenn og 300.000 íbúar, er að minnka losun um 300 kíló. Það er enginn smá árangur. En hins vegar liggur alveg fyrir að við höfum sýnt andvaraleysi þegar kemur að framleiðslu á grænni orku, sama hvort það er heitt vatn eða rafmagn. Þannig að ef hv. þingmaður ætlar að gagnrýna þann sem hér stendur þá tekur hann ekki þetta mál fyrir heldur spyr: Af hverju gangið þið ekki harðar fram í því að sjá til þess að hér verði framleidd græn orka? Þannig er það nú. Við erum að róa að þessu öllum árum og menn munu sjá hér uppfærða aðgerðaáætlun, sömuleiðis frekari áætlun um hvernig á að ná þessu fram, ekki bara um að taka út jarðefnaeldsneyti og setja græna orku í staðinn heldur líka m.a. að efla og styrkja hringrásarhagkerfið sem mun líka þýða minni losun, svo eitthvað sé nefnt.