fráveitur og skólp.
Frú forseti. Í umræðum um umhverfismál er mjög mikilvægt að nálgast viðfangsefnið með jákvæðum hætti, ekki bara sem bönn og höft og gjöld og þvinganir heldur að finna lausnir á þeim verkefnum sem stendur fyrir dyrum að leysa úr. Eitt af þeim málum er fráveituverkefnið en það má segja að það standi óleyst. Reglugerðin sem við erum núna að fylgja er frá árinu 1999 og er úrelt. Það er ekki bara vegna þess að hún er gömul heldur líka vegna þess að í henni eru séríslensk ákvæði sem eru þannig að þau hygla að einhverju leyti Reykjavíkurborg eða höfuðborgarsvæðinu og þau eru að einhverju leyti þrándur í götu minni sveitarfélaga við sjávarsíðuna við að finna lausnir á sínum fráveitumálum. Það má segja að það hafi staðið yfir núna í rúman áratug endurskoðun á þessari reglugerð og gott ef hún fór ekki af stað vegna umræðu um fráveitumál við Ölfusá, frá Selfossi. Það var skipuð nefnd árið 2013 sem starfaði í fjögur ár og skilaði skýrslu árið 2017 en síðan hefur kannski lítið gerst. Að einhverju leyti er öllu slegið á frest vegna þess að fyrrverandi umhverfisráðherra taldi að reglugerðin kæmi ekki alveg til móts við örplastið en það eru algerlega óþarfar áhyggjur vegna þess að yfir 80% af örplastinu koma frá bílaumferð. Þess vegna tel ég mikilvægt að fá hér fram hvað sé í gangi í umhverfisráðuneytinu hvað varðar þessi mál, mál sem ætti að vera sjálfsagt að leysa úr. (Forseti hringir.) Ég treysti hæstv. ráðherra til þess að gera það eins fljótt og auðið er.