Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 112. fundur,  30. maí 2023.

fráveitur og skólp.

1116. mál
[16:38]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir fyrirspurnina. Hér er um að ræða mikilvægt mál. Stutta svarið er þetta: Ný reglugerð um fráveitur og skólp sem leysir eldri reglugerð af hólmi er svo gott sem tilbúin. Í gangi er samtal ráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samorku um kostnaðaráhrif af nýrri reglugerð og standa vonir til þess að niðurstaða fáist í það á næstunni. En langa svarið er svona, virðulegi forseti:

Frá árinu 2013 hefur staðið yfir vinna við endurskoðun á reglugerð um fráveitur og skólp. Drög að nýrri reglugerð voru kynnt í samráðsgátt í apríl 2018. Setning reglugerðarinnar er brýn og mun leysa mörg mál tengd fráveitum og stuðla að skýrari reglum fyrir sveitarfélög og atvinnulíf og stjórnsýsluna. Í umsögn Samorku við reglugerðardrögin í apríl 2018 segir, með leyfi forseta:

„Að mati Samorku er mikilvægt að vinnu við útgáfu reglugerðarinnar ljúki sem allra fyrst þannig að ljóst sé hvaða reglum beri að fara eftir við uppbyggingu fráveitumannvirkja. Það er ekki gott ástand þegar óvissa um reglugerðarumhverfi starfsemi fráveitna er hindrandi fyrir nauðsynlega uppbyggingu, sem því miður er orðið tilvikið.“

Fleiri hafa síðan tekið undir þessar áhyggjur og bent á nauðsyn þess að reglugerðin verði sett sem fyrst, svo sem Umhverfisstofnun og heilbrigðisnefndir. Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf segir, með leyfi forseta:

„Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir stórátaki í samvinnu við sveitarfélög í frárennslismálum þannig að þau standist ýtrustu kröfur náttúruverndar um allt land eigi síðar en 2028.“

Markmið reglugerðarinnar er að vernda almenning og umhverfið gegn mengun af völdum losunar skólps. Lögð er áhersla á að hreinsun sé í samræmi við kröfur hvað varðar lífrænt efni og rusl og örplast, á hreinar strendur, hreint haf og betri nýtingu auðlinda með því að nýta seyru sem áburð, nýsköpun og náttúruvænar lausnir, svo sem hreinsun á skólpi með votlendi. Nú er tækifæri til að horfa til nýrra lausna sem bæði uppfylla kröfur reglugerðar, vernda umhverfið og eru hagkvæmari fyrir sveitarfélög.

Um er að ræða kostnaðarsaman málaflokk og reglugerðin hefur í för með sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélög. Að mati ráðuneytisins er kostnaður við að ljúka uppbyggingu fráveitna, þannig að allir byggðakjarnar uppfylli skilyrði um hreinsun samkvæmt reglugerð um fráveitur og skólp, metinn á bilinu 17–28 milljarðar, þ.e. núgildandi reglugerð, og kostnaður við aukna hreinsun á stærstu nýju stöðunum með nýrri reglugerð á bilinu 10–16 milljarðar eða að heildarkostnaður geti numið á bilinu 27–44 milljörðum kr. Það eru ýmsar leiðir í fjármögnun. Eðlilegt er að sveitarfélögin tryggi að fráveitugjald fari í fráveituverkefni og rekstur fráveitna og að úr ríkissjóði séu veittir styrkir til fráveituframkvæmda. Auk þess eru fleiri leiðir til fjármögnunar, svo sem nýsköpunarstyrkir, LIFE-styrkjaáætlunin og grænar fjárfestingar. Reglugerðin hefur verið unnin í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, Samorku og Umhverfisstofnun. Það er almenn sátt um helstu efnisákvæði reglugerðarinnar ef frá er skilin krafa um aukna hreinsun. Samband íslenskra sveitarfélaga leggur áherslu á einhliða bókun Íslands frá því að fráveitutilskipunin var tekin upp í EES-samninginn eins og hv. þingmaður vísaði til. Hins vegar skulum við bara tala um hlutina eins og þeir eru. Það sem er auðvitað erfitt í þessu er þessi gríðarlegi kostnaður, því að 27–44 milljarðar kr. er ekki lítill kostnaður fyrir sveitarfélög landsins, eins og ég veit að hv. þingmaður þekkir mætavel.