fráveitur og skólp.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni bæði fyrir fyrirspurnina og hans orð hér og mér fannst hann lýsa málinu ágætlega. Hann vísaði í þekkingarbrunn í þessum litlu sveitarfélögum og þó að þau væru stærri þá held ég að það væri mjög skynsamlegt. Hann fór hérna yfir efnisþætti málsins. Það sem er flókið er reglugerðarumhverfið sem við erum í, í gegnum EES-samninginn. Það er það sem er flókið í þessu. Við höfum átt samtal við Noreg og markmiðið er náttúrlega í þessu að vernda hafið eins og við þurfum alltaf að gera en vegna þess að hv. þingmaður er væntanlega að vísa í sömu skýrslu og ég hef lesið, um að viðtakinn þoli þetta sem er til staðar, þá erum við á sama tíma ferðaþjónustuland, við erum matvælaland og við viljum alltaf hafa kröfurnar eins miklar og góðar og mögulegt er. Svo er spurningin hvort þær taki tillit til þeirra aðstæðna sem við erum í því þetta á náttúrlega við um borgir eða þéttbýli við ár í Evrópu og alla aðra líka. Það eina sem ég geri athugasemd við í málflutningi hv. þingmanns er að þetta sé einfalt og ég geti leyst þetta á mínu borði. Það er bara því miður ekki þannig. Það hefði kannski verið betra að menn hefðu farið dýpra í þetta hér fyrir löngu síðan. Sú er ekki raunin. Við erum að taka við þeirri stöðu sem er núna. Hvað viljum við? Við viljum setja markið hæst, og hátt. Það viljum við gera. En auðvitað þurfum við sömuleiðis að taka alltaf mið af þeim aðstæðum sem við erum í, eðlilega, og fleiri. En það liggur alveg fyrir að menn eru búnir að fresta þessum málum mjög lengi. Það er örugglega í einhverjum tilfellum gott að fresta en ekki í málum sem þessum.