Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

538. mál
[17:00]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það eru nokkur atriði sem ég vil halda á lofti varðandi þetta mál. Fyrst og fremst snýst það um að gera útgerðum kleift að eyða minni olíu við tilteknar veiðar með því að skapa hvata fyrir útgerðir til að endurnýja eða endurbæta skipakost sinn með umhverfisvænni skipum sem hafa stærri og hæggengari skrúfur en samdrátturinn kann að nema allt að 50% í minni olíunotkun. Umræðan hefur mikið snúist um það að fleiri skip geti með þessari lagabreytingu veitt innan viðmiðunarlínu. Það er þó ekki, enda snýr þessi lagabreyting ekki að því að veita skipum heimild til veiða á svæðum þar sem þau mega ekki veiða í dag. Í minnisblaði matvælaráðuneytisins til hv. atvinnuveganefndar kom fram að meginþorri fiskiskipa geti í dag stundað veiðar fyrir innan og utan viðmiðunarlínu með mismunandi takmörkunum. Hér má benda á takmarkanir sem settar eru á veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni, takmarkanir sem lúta að veiðisvæðum og þeim tíma sem veiðar mega fara fram. Ef takmarka þarf veiðar ætti það að gerast vegna veiðarfæra en ekki stærðar skipa. (Forseti hringir.) (Gripið fram í.)

Að lokum vil ég segja að það er mikilvægt að hraða vinnu við verndun viðkvæmra vistkerfa gegn veiðarfærum og því fagna ég tillögum þess efnis í bráðabirgðatillögum Auðlindarinnar okkar um að banna togveiðar innan 12 mílna.