Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Forseti. Eins og kom fram hér í máli hv. þm. Höllu Signýjar Kristjánsdóttur óskaði ég eftir í umræðum um þetta mál í síðustu viku að það yrði skoðað hvort ekki væri hægt að laga það sem ég tel vera mistök við lagasetningu tengda meðlagsgreiðslum til aðila búsettra erlendis. Mig langar að nota þetta tækifæri til að þakka hv. framsögumanni fyrir að taka jákvætt í það að skoða þetta og ræða það bæði innan nefndarinnar og við ráðuneytið. Vonandi náum við að koma þessu í lag í haust þegar þessi heildarendurskoðun fer í gang. Í ljósi þessara jákvæðu viðbragða vil ég koma því á framfæri við hæstv. forseta að ég fer ekki lengur fram á það að málið gangi aftur til hv. umhverfis- og samgöngunefndar milli umræðna.