Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra, ein umr.
Virðulegi forseti. Verðbólgan er vágestur sem þarf að kveða niður með markvissum aðgerðum og samstilltu átaki. Við glímum við verðbólgu um þessar mundir á nokkuð breiðum grunni og við eigum mikið undir í baráttunni því verðbólguástand verður erfiðara að eiga við eftir því sem það gerist þrálátara. Stöðugleika á vinnumarkaði er nær ómögulegt að ná ef verðbólguvæntingar lagast ekki, fjármagnskostnaður í hagkerfinu vex, hætt er við að það dragi úr fjárfestingu og verðvitund bjagast. Heimili sem eiga erfitt með að ná endum saman verða fyrst fyrir barðinu á verðbólgu og þess vegna þarf að huga sérstaklega að þeim heimilum. Þá eiga mörg heimili erfitt með að ráða við ört hækkandi greiðslubyrði vegna óverðtryggðra húsnæðislána. Af öllum þessum ástæðum og fleiri til er mikilvægt að horfur um verðbólgu til næstu missera lagist.
Virðulegi forseti. Það er gríðarlega mikilvægt þegar við ræðum um stöðu efnahagsmála að við séum raunsæ á það hvernig mál hafa þróast undanfarin ár og misseri því þótt verðbólga hafi farið vaxandi hafa lífskjörin farið mjög ört batnandi undanfarin ár. Hver myndi t.d. trúa því, miðað við umræðuna eins og hún er hér í dag, ekki síst á Alþingi, að þrátt fyrir vöxt verðbólgunnar er það enn svo að kaupmáttur launa verkafólks á almennum vinnumarkaði er nú meira en 15% hærri en hann var í ársbyrjun 2015? Eða að almennt á vinnumarkaði sé kaupmáttur launa hátt í 10% hærri en í ársbyrjun 2019? Kaupmáttur lægstu tekjutíundarinnar hefur vaxið mest undanfarin ár og það sama átti við í fyrra. Þetta sjáum við af álagningartölum vegna skattframtala fyrir árið 2022. Kaupmáttur lægstu tekjutíundarinnar fór í fyrra mest upp af öllum tekjutíundum. Vaxtagjöldin hafa jú vissulega hækkað og hafa aðeins dregið úr kaupmætti en það var aðeins að hluta sem það gerði á móti tekjuvexti.
Við sjáum það sömuleiðis að þessa jákvæðu þróun, þennan mikla kaupmáttarvöxt, þessa lífskjarasókn sem við höfum verið í, höfum við fengið m.a. vegna þess að við höfum verið að lækka skatta, ekki síst á tekjulægri einstaklinga. Og efnahagsbatinn eftir heimsfaraldur hefur verið sterkari hér á landi en víða annars staðar. Hagkerfið óx um 6,4% í fyrra og stefnir nú í að vöxturinn verði hátt í 5% í ár. Tökum til samanburðar Þýskaland. Þar hefur verið efnahagssamdráttur síðasta ársfjórðunginn og ársfjórðunginn þar á undan, en hér á Íslandi stefnir í 5% vöxt í ár. Atvinnuleysi hefur lækkað hratt hér á landi og þeim fækkar sífellt sem hafa verið lengi atvinnulausir. Efnahagsbatinn hefur verið hraðari en bjartsýnasta fólk þorði að vona í kjölfar heimsfaraldursins og við höfum bætt afkomu og skuldastöðu hins opinbera langtum hraðar en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Horfur lánshæfismatsfyrirtækjanna eru nú að breytast í jákvæðar. Þetta eru allt saman merki um styrkleika og sókn sem við höfum verið í í efnahagsmálum.
En þessum efnahagsbata hefur fylgt há og nokkuð þrálát verðbólga. Seðlabankinn hefur brugðist við henni með hækkun vaxta í samræmi við það meginmarkmið bankans og verkefni að stuðla að stöðugu verðlagi. Ríkisfjármálin hafa lagst á sveif með peningastefnunni með sífellt bættri afkomu umfram það sem leiðir af hagvextinum á sama tíma og staðinn er vörður um bætur þeirra sem minnst hafa. Hér má nefna nokkur dæmi: Bætur almannatrygginga hækkuðu um 9% í fyrra og um 7,4% frá áramótum síðustu. Frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hækkaði um helming, í 200.000 kr. í ársbyrjun. Húsaleigubætur hafa verið hækkaðar um fjórðung frá miðju ári í fyrra, auk þess sem tekjumörk voru hækkuð til jafns við hækkun bóta. Eignamörk voru hækkuð um 50% í vaxtabótakerfinu í byrjun árs. Barnabætur hækkuðu núna um áramótin með breyttu kerfi, með samtímagreiðslum, grunnfjárhæðir hækkuðu, skerðingarmörk sömuleiðis og skerðingarhlutföllum var fækkað, kerfið einfaldað, lægri jaðarskattar, fleiri fá bætur en áður. Persónuafsláttur og þrepamörk í skattkerfinu í staðgreiðslunni hækkuðu um 10,7% 1. janúar 2023.
Þetta eru allt aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur ráðist í og hafa skilað árangri til að verja kaupmátt þeirra sem veikastir eru fyrir þegar verðbólga geisar. Þetta sýna allar tölur, nú síðast rauntölurnar um það sem var að gerast á árinu 2022. Kaupmáttur lægstu tekjutíundar óx mest í fyrra.
Ég er ekki að rekja hér einhverjar fortíðaraðgerðir eða einhverja gamla sögu. Þetta eru breytingar sem við höfum verið að gera á undanförnum misserum, undanförnum vikum og mánuðum sem hafa haft bein jákvæð áhrif á lífskjör fólks í landinu og gera öllum betur kleift að komast í gegnum þann verðbólgukúf sem við nú glímum við.
Við skulum ekki gleyma því að aðilar vinnumarkaðarins eru stór hluti jöfnunnar. Þegar við tölum um að það þurfi samhent átak þá verður ekki horft fram hjá því að aðilar vinnumarkaðarins leika þar mjög stórt hlutverk. Okkur hefur ekki tekist að brjótast út úr þeirri óheppilegu sérstöðu okkar Íslendinga að hækka laun í kjarasamningum umfram það svigrúm sem framleiðni vinnuafls okkar gefur. Afleiðingin er sú að nafnlaun hækka sífellt meira en víðast annars staðar. Það gerir hins vegar, þegar upp er staðið, tiltölulega lítið fyrir almenning í landinu sem getur ekki kreist út meiri kaupmátt en í nágrannaríkjum og situr þar af leiðandi fyrst og fremst uppi með hærri verðbólgu. Það er algjört grundvallaratriði að ná sátt um skynsamlega tilhögun þessara mála til framtíðar. Þar skiptir m.a. máli að styrkja stöðu ríkissáttasemjara og færa fyrirkomulagið hér til betra samræmis við norræna módelið í vinnumarkaðsmálum. Það væri eitt mesta framfaraskref sem við gætum tekið í viðleitni okkar til að auka stöðugleika í efnahagsmálum á Íslandi.
Helsti vandi okkar hér á landi, virðulegi forseti, er sá að væntingar um verðbólgu til næstu missera eru enn allt of háar. Þessar háu verðbólguvæntingar eru sjálfstætt vandamál og það mun ekki leysast af sjálfu sér. Seðlabankinn getur svo sem haldið áfram að hækka vexti og dregið á endanum svo úr efnahagsumsvifum að verðbólguvæntingar lækki jafnt og þétt, eða kannski skyndilega, að markmiði. En auðvitað hljóta allir að sjá að skynsamlegra væri að hér yrði unnið að gerð samninga á vinnumarkaði sem samræmast framleiðnivexti og stuðla þannig að meiri stöðugleika og varanlegri hagsæld fyrir heimilin í landinu. Þetta hefur ítrekað verið gert, eins og ég hef komið inn á, með góðum árangri á Norðurlöndunum og er meira en raunhæft fyrir okkar samfélag ef nægjanlega margir eru tilbúnir til að róa í sömu átt.
Virðulegi forseti. Það eru svo sem engar töfralausnir en þetta er ekki létt verk. Það þarf samhent átak. Það dugar lítið að tala nú fyrir upptöku nýs gjaldmiðils til að takast á við þetta vandamál eða að einhverjir nýir skattar muni leysa þann vanda sem við horfum fram á. Það er ekki að fara að leysa þetta þannig að við komumst hratt í gegnum verðbólgukúfinn. Við þurfum fyrst og fremst að gera þrennt:
Við þurfum að halda áfram á þeirri vegferð okkar að styrkja stöðu ríkissjóðs og hins opinbera. Við höfum bætt afkomuna stórum skrefum og skemmst er að minnast þess hversu miklu betri afkomuhorfurnar eru í dag en þegar við gengum frá fjárlögum vegna yfirstandandi árs. Þar munar mjög miklu. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lýsti því yfir eftir heimsókn sína hingað um daginn að ríkisfjármálin styddu hæfilega við hagkerfið og styddu við lækkandi verðbólgu á yfirstandandi ári, en við fengum hvatningu til þess að horfa til þess hvort meira mætti gera 2024 og 2025. Það þurfum við að gera. Við þurfum að meta það í þeirri meðferð sem fjármálaáætlunin er hér í þinginu.
Í öðru lagi þurfum við að halda áfram að byggja upp hagkerfið okkar, gera hagkerfið öflugra, auka fjölbreytni í atvinnustarfsemi í landinu. Víða gengur það mjög vel. Það er verið að fjárfesta um allt land í nýjum atvinnugreinum og rannsókna- og þróunarfjárfestingin sem hefur átt sér stað undanfarin ár hefur líka lagt grunn að nýjum verðmætaskapandi störfum til framtíðar. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli þegar samkeppnishæfni okkar og þrautseigja hagkerfisins í heild er mæld; að gera hagkerfið öflugar, að auka fjölbreytni í atvinnulífinu. Það er lykilaðgerð sem við megum ekki missa niður og tapa sjónum af þrátt fyrir að við glímum tímabundið við verðbólgukúf.
Í þriðja lagi eigum við að nýta það svigrúm sem við þó höfum til þess að standa áfram með þeim sem minnst mega sín í samfélaginu. Við höfum boðað það núna að styrkja enn frekar almannatryggingakerfið með viðbótarhækkun umfram það sem ég hef hér áður rakið og það skiptir máli til þess að standa með þeim sem minnst hafa milli handanna. Undan því mun ríkisstjórnin ekki skorast.
Við þurfum að hafa áhyggjur af framleiðnivextinum eins og hann hefur þróast undanfarin ár. Það er áskorun vegna þess að það er ekki raunhæft að hafa væntingar um vaxandi kaupmátt og öfluga opinbera þjónustu (Forseti hringir.) þegar framleiðnivöxtur er ekki meiri en raun ber vitni.
Það eru stór verkefni fram undan en á margan hátt (Forseti hringir.) er staðan sem við stöndum í dag mjög sterk og gefur sóknarfæri.