Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.

[17:30]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það þarf einmitt samstöðu en það er eins og ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra séu bara með valkvæða hlustun þegar Seðlabanki Íslands er að brýna hæstv. ríkisstjórn. Það er valkvæð hlustun. Þau vilja ekki hlusta á Seðlabankann, ekki á SA. Látum vera ef það er ekki hlustað á Viðreisn — en ekki ESA, ekki fjármálaráð, ekki Viðskiptaráð sem gagnrýna ríkisstjórnina harðlega fyrir algert aðhaldsleysi og ákvarðanaleysi þegar kemur að ríkisfjármálum. Ríkisfjármálin skipta máli þegar kemur að stöðu heimilanna í landinu og ríkisstjórnin skilar auðu þar, hún skilar auðu. Það er hvergi komið að því hvernig á að auka aðhaldið — hvergi. Ríkisstjórnin hefur ekkert með það að segja. Það er eftirspurn eftir því hvaða skoðun hæstv. ráðherra ætlar að koma með hingað, fyrir utan að vera með algert skoðanaleysi gagnvart ákveðnum hluta af heimilunum. Af því að hann lifir í meðaltalinu þá má ekki tala við ákveðna hópa eða heimilin í landinu. Hvers konar er þetta? Það er verðbólga búin að vera lengi hér, meiri verðbólga heldur en í viðmiðunarríkjum en við erum samt með þrefalt hærri vexti heldur en viðmiðunarríkin eru með. Svo ypptir bara íslenska ríkisstjórnin öxlum (Forseti hringir.) og segir: Ja, að meðaltali er þetta fínt en okkur er alveg sama um þennan ákveðna hóp heimila. (Forseti hringir.) Þetta er ekki boðlegt.