Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.
Virðulegi forseti. Það er bara staðreynd að aðgerðir gegn verðbólgunni eru miklu verri en verðbólgan sjálf. Meðalheimili eru kannski að borga 10.000–50.000 kr. aukalega í útgjöld út af verðbólgunni en ofan á það bætast sirka 240.000 og jafnvel meira, í einhverjum tilfellum minna en oft meira hjá venjulegum heimilum. Það gefur augaleið að heimilin sligast undan þessu, það bara kemur ekkert annað til greina. Hæstv. ráðherra talaði um 9% hækkun almannatrygginga. Ókei, gott og vel, en síðasta hækkun Seðlabanka Íslands á vöxtum var upp á 16,67%. Það er hækkunin. Næstum því 17% hækkun og þetta er í 13. skiptið sem Seðlabankinn beitir þessu tæki. Við þurfum bara að fara að tala um raunveruleikann hérna. Fólk stendur ekki undir þessu. Það er bara svoleiðis. Það þarf enga snillinga til að sjá það. Allt sæmilega vel gefið fólk ætti að sjá að heimilin standa ekki undir þessu, alveg sama hvað kaupmætti líður, eiginfjárstöðu og öðru slíku.