Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.

[17:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef nú sagt það í nokkur skipti í þessari umræðu að það er ástæða til að hafa áhyggjur af þeim sem eru lægst í tekjustiganum. Við þurfum að gæta að því að aðgerðir stjórnvalda séu til þess fallnar að verja þessa hópa fyrir áhrifum verðbólgunnar. Allar tölur sem við höfum um þetta efni sýna að það hefur gengið ágætlega hjá okkur. Það hefur gengið ágætlega. Það er hins vegar alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að sum heimili, heimili sem hafa tekið t.d. tiltölulega hátt óverðtryggt lán, eiga erfitt með að standa í skilum vegna vaxandi greiðslubyrði. Þetta er alveg hárrétt. Þá vaknar spurningin: Á það heimili mögulega að gera skilmálabreytingar, breyta úr óverðtryggðu yfir í verðtryggt? Þarf að taka tillit til þess þegar við metum viðkomandi heimili hvort tekjur hafi vaxið yfir tíma, hvernig kaupmátturinn hefur þróast hjá heimilinu? Ég held það. (Forseti hringir.) Ég held að við eigum að horfa til slíkra hluta áður en við komumst að þeirri niðurstöðu að það þurfi að stórauka tilfærslur (Forseti hringir.) og aðrar bótagreiðslur.