Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.
Virðulegi forseti. Ég held að það séu margar ástæður fyrir því að við erum stödd í þeirri verðbólgu sem við horfum upp á í dag. Hefði aðhald ríkisfjármálanna mátt vera meira? Já, ég held að það hefði mátt vera meira. Ef við hefðum haft þær forsendur um bæði verðbólgu og hagvöxt sem við hefðum þá þurft að hafa þá held ég að við hefðum aukið aðhaldsstigið. Það reynir á kerfið hjá okkur þegar jafn margir flytja til landsins eins og hefur verið undanfarið ár og hefur verið líka í byrjun þessa árs. Það stefnir í að það sé margfaldur fjöldi þeirra sem hafa flutt til landsins undanfarin ár sem fluttu til landsins í fyrra og á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. En það aðhald sem við erum að ræða um í ríkisfjármálum birtist okkur t.d. í frumjöfnuðinum sem varla er hægt að efna til einhvers ágreinings um að hefur batnað um 200 milljarða á tveimur árum. Þetta eru bara tölurnar. Mér finnst ágætt að nota tölur til grundvallar umræðu þegar þær liggja fyrir fyrir liðið tímabil. (Forseti hringir.) 200 milljarða afkomubati fyrir ríkissjóð skiptir máli þegar við erum að berjast við verðbólgu.