Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Fer kannski aðeins í aðra átt í seinna andsvari, mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu hans til þeirrar ákvörðunar hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að leggja ekki fram lagabreytingu sem styrkti stöðu ríkissáttasemjara, í ljósi þess að hæstv. ráðherra kom inn á stöðu ríkissáttasemjara og regluverk hans sem umlykur það embætti í ræðu sinni hér áðan. Þykir hæstv. ráðherra sú ákvörðun félags- og vinnumarkaðsráðherra að leggja ekki fram frumvarp sem gerir ríkissáttasemjara raunverulega kleift að leggja fram miðlunartillögu eldast vel?