Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.

[17:49]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Upp á síðkastið hafa stjórnarþingmenn og raunar ríkisstjórnin öll sífellt oftar stillt sér upp í stöðu álitsgjafa sem fylgist með og gerir athugasemdir án þess að taka nokkra ábyrgð, líkt og þau lendi bara í aðstæðum en séu ekki meiri háttar gerendur í lífi íslensks almennings.

Forseti. Það er 10% verðbólga, vextir nálgast 9% og enginn vill bera ábyrgð. Nú þarf nýja pólitík til forystu, fólk í forystu sem skilur grundvallarmeinið sem skapar þann þrýsting sem nú er til staðar.

Virðulegi forseti. Við í Samfylkingunni skiljum nefnilega samhengi hlutanna, samhengi sem hæstv. ríkisstjórn neitar að horfast í augu við. Brestir hafa myndast víða í velferðarkerfinu okkar á undanförnum árum. Sama hversu oft hæstv. ráðherrar þylja upp tölfræði og kaupmátt ráðstöfunartekna og ýmsa mælikvarða á tekjujöfnuð þá dylur það ekki þá tilfinnanlegu staðreynd sem blasir við flestum Íslendingum með reglubundnum hætti, að opinber þjónusta hefur versnað. Það er ekki vegna þess að starfsfólkið standi sig verr heldur vegna þess að aðgengi hefur minnkað vegna álags, mannaflaskorts og kostnaðarþátttöku. Þessi verri gæði velferðarþjónustu mælast þó ekki í kaupmætti. Þetta er meiri háttar mál, enda stór hluti af velsæld fólks í velferðarsamfélagi.

Almenningur finnur líka fyrir brestum á húsnæðismarkaði. Hann finnur fyrir því að í dag kostar meðalhúsnæði fjórtánfaldar meðalráðstöfunartekjur í landinu miðað við áttfaldar tekjur um aldamótin. Þetta er helsta ástæða þess að vaxtahækkanir eru svona sársaukafullar. Fólk skuldar svo mikið í húsnæði sínu að hvert prósentustig vegur þyngra. Og fólk finnur fyrir því að leigumarkaðurinn hér er einn sá óregluvæddasti meðal þeirra landa sem við berum okkur saman við. Hér er leiguhúsnæði sem rekið er á samfélagslegum grunni í lágmarki miðað við Norðurlöndin og nágrannalöndin og leiguvernd er af skornum skammti. Hvað varðar leigubremsu og allt tal um hækkun leiguverðs þá vita það flestir að opinber verðvísitala leiguverðs gefur ekki rétta mynd af þróun leiguverðs hér á landi þar sem fjöldi samninga stendur fyrir utan þá vísitölu. Að sama skapi er holur hljómur að tala um að leiguverð hafi ekki hækkað og þess vegna standi ekki til að setja á leigubremsu. Bremsan á einmitt að koma áður en slíkar hækkanir koma til, en sífellt erum við í viðbragði og heyrum þetta enn. Hömluleysið á húsnæðismarkaði er nefnilega rót verðbólgunnar í dag og þetta er helsta ástæðan fyrir ólgu á vinnumarkaði.

Nú hefur hæstv. ríkisstjórn kynnt fjármálaáætlun til næstu ára og það er orðið ljóst að fyrirheit um stórkostlega uppbyggingu í húsnæðismálum eru brostin. Hér á ekki að byggja þann fjölda hagkvæmra íbúða sem lofað var fyrr en eftir að kjörtímabilinu lýkur. Hæstv. fjármálaráðherra hefur sjálfur ítrekað haft orð á því að fólkið í landinu hafi ekki trú á því að ríkisstjórnin geti náð tökum á ástandinu og það sé sjálfstæður vandi. Af hverju ætli það sé? Hér ættu menn e.t.v. að líta í eigin barm og spyrja sig hvers vegna illa gengur að ala á samstöðu meðal þjóðarinnar til að takast á við verðbólguna. Fólk trúir einfaldlega ekki forsvarsmönnum hæstv. ríkisstjórnar, enda hefur hún brugðist í þessum grundvallarmálaflokki og brugðist þegar kemur að því að tryggja húsnæðisöryggi fólks.

Virðulegi forseti. Sama má segja um heilbrigðismálin. Þar hafa stjórnvöld brugðist þegar kemur að því að tryggja öryggi. Íslenskur almenningur finnur fyrir tugþúsunda viðbótargreiðslum úr eigin vasa vegna samningsleysis við lækna og þessi staða birtist m.a. í launakröfum. Hæstv. ríkisstjórn hefur brugðist þegar kemur að því að skilja að úrbætur í velferðarkerfinu okkar, í tilfærslukerfum, barnabótum, vaxtabótum, betri heilbrigðisþjónustu; allt eru þetta þættir sem eru betur til þess fallnir að styðja við fólk eftir þörf og tímabili í lífinu en almennar launahækkanir. Það er ástæða fyrir því að í velferðarsamfélögum í kringum okkur hefur gengið betur að semja um hóflegar launahækkanir jafnt og þétt, því grunnvelferðin og grunntilfærslukerfin eru sterkari þar en hér. Þetta skilja líka atvinnurekendur á Norðurlöndunum. Þeir skilja að samtryggingin dreifir fjármagni með skilvirkari hætti þegar áföll dynja yfir en almennar launahækkanir. En þegar samtryggingin er veik þá er lítið annað hægt að gera en að krefjast hærri launa. Á þessu ástandi og samhengi hlutanna ber hæstv. ríkisstjórn ábyrgð. En í stað þess, virðulegur forseti, að horfast í augu við það, bendir hún á vinnumarkaðinn og hneykslast á launafólki fyrir að bæta sér upp brestina í velferðarkerfinu með hærri kaupkröfum. Í stað þess að axla sína ábyrgð þá eftirlætur hæstv. ríkisstjórn ókjörnum embættismönnum í Seðlabankanum einum að taka risastórar ákvarðanir sem hafa veruleg áhrif á daglegt líf fólks.

Vextir eru mjög breitt tól. Vaxtahækkun spyr ekki um stöðu fólks. Vaxtahækkun á vissulega að hafa þau áhrif að efla sparnað, en ekki með því að gera fólki ókleift að borga fyrir nauðsynjar eða með því að draga úr húsnæðisöryggi fólks. Seðlabankinn hefur lögbundið hlutverk, sem er að tryggja verðstöðugleika, en hann hefur takmörkuð tól til að tryggja jöfnuð í landinu og hefur reyndar ekki einu sinni umboð til þess. Til þess eru hins vegar kjörnir fulltrúar. Hlutverk ríkisins er að huga að stóru myndinni en ekki eftirláta ókjörnum embættismönnum að ákvarða hvernig samfélagið þróast hérna. Við hérna inni getum dreift þessu höggi. Við höfum til þess tól ef vilji er til þess.

Virðulegi forseti. Staðan í okkar velferðarsamfélagi er sú að hæstv. ríkisstjórn hefur farið þá leið að sannfæra íslenskan almenning um ágæti þess að lækka skatta, en á móti hefur hún tekið tugi milljarða króna út úr velferðarkerfinu okkar. Félagshyggjuflokkarnir svokölluðu, sem gengu inn á efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins sem tekur stærstu, einstöku stefnumótandi ákvarðanir okkar tíma og hefur gert það í áratug, stæra sig jafnan af þeirri skattalækkunarvegferð sem ráðist var í. Hér stendur enginn vörð um velferðarsamfélagið í þessari ríkisstjórn og enginn stendur vörð um samstöðuna. Það er nefnilega ábyrgðarhluti að ala ekki á hólfaskiptingu samfélagsins, að sjá stóru myndina á meðan heimili landsins hugsa eðlilega um heimilisbókhaldið sitt og treysta ráðamönnum fyrir heildarsamhengi hlutanna. Hæstv. ríkisstjórn fjölgaði vissulega skattþrepum en það var allt í takt við vilja hæstv. fjármálaráðherra með því að fjarlægja tugi milljarða króna út úr tekjustoðum ríkisins með tilheyrandi áhrifum á velferðarkerfið okkar. Enginn vilji hefur verið fyrir því að mæta þessari skattalækkun með aukinni skattheimtu annars staðar eða gjaldtöku, þó að víða séu sjóðir digrir, og keyrt hefur verið á þeirri möntru, með stuðningi allra ríkisstjórnarflokka, að ráðstöfunartekjur fólks hafi aukist og þar með velsæld meðal-Íslendings vegna þessarar aðgerðar. Minna fer hins vegar fyrir umræðu sem sannir velferðarsinnar myndu halda á lofti, þ.e. að þessi aðgerð og þetta hugarfar hefur orðið til þess að kljúfa þjóðina í marga hluta og hólfa fólk af þar sem auknar tekjur fólks eftir skatta veiktu opinbera þjónustu og getu hins opinbera til að veita húsnæðismarkaði aðhald. Þau sem þetta skilja, skilja hvers vegna aukinn kaupmáttur fólks að meðaltali hefur ekki aukið ánægju hins almenna Íslendings, hvað þá þeirra sem helst þurfa að reiða sig á velferðarþjónustuna. Velferðarþjónustan sem eykur lífsgæði fólks hefur versnað og auknar ráðstöfunartekjur hverfa í auknum húsnæðiskostnaði hjá stórum hluta almennings, því kaupmáttur ráðstöfunartekna tekur ekki tillit til þess að húsnæðiskostnaður fólks er mismunandi.

Virðulegi forseti. Þetta samhengi hlutanna skiptir máli af því að enginn í þessari ríkisstjórn stendur vörð um velferðina, enginn vill skilja þetta samspil hins opinbera, vinnumarkaðar og atvinnulífs og svo er fólk hissa á að ekki sé sátt meðal almennings í þessu umhverfi. En ég vil benda á að þótt jafnaðarfólk sé ekki við forystu í landinu og í velferðarkerfinu og þótt stefnu samfélagsins verði ekki breytt yfir nóttu þá eru samt enn þá tækifæri til að grípa inn í fyrir þinghlé í sumar til að sýna fólki að það sé skilningur á því að ef ekki bætast við aðgerðir fyrir heimilin, aðgerðir sem vel er hægt að fjármagna og koma þannig í veg fyrir þensluáhrif, þá eykst hér klofningur og hólfaskiptingin sem ríkisstjórnin hefur alið á. Þá veikist samstaðan enn meira og kjarasamningsviðræður hefjast á verri stað í haust.

Virðulegi forseti. Það stendur ekki á okkur í Samfylkingunni að koma með lausnir. Við setjum okkur hvorki upp á móti öllu né gerum mál úr hverju sem er, en þegar kemur að kjörum, efnahag og velferð fólks þá höfum við skýra sýn og skiljum hvers vegna fólk vill sjá breytingar. Þess vegna munum við leggja fram tillögur um vaxtabætur á næstu dögum og höfum ítrekað beðið ríkisstjórnina að setjast niður með verkalýðshreyfingunni sem fyrst til að útfæra tímabundna leigubremsu. Við biðlum til ríkisstjórnarinnar að ekki verði gefið eftir í uppbyggingu húsnæðis, af því að ef farið verður inn í sumarið án þess að ríkisstjórnin skilji og sýni að hún skilji samhengi hlutanna þá bíður okkar erfiðari kjaravetur en ella.