Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.
Virðulegi forseti. Eftir þrettándu stýrivaxtahækkunina er boðskapur ríkisstjórnarinnar sá sami. Stjórnin beinir tilmælum náðarsamlegast til heimilanna, fyrirtækjanna í krónuhagkerfinu, vinnumarkaðar og seðlabankastjóra að nú skuli taka höndum saman gegn verðbólgu og vaxtahækkunum. En það er lítið gert eða aðhafst í ríkisfjármálunum. Það er auðvitað ljóst að til skemmri tíma þarf að koma með lausnir fyrir þau sem lægst launin hafa og verða mest fyrir barðinu á núverandi ástandi, aðgerðir fyrir leigu- og húsnæðismarkaðinn, tímabundnar vaxtabætur, lækkun tolla og gjalda og að ríkisvaldið haldi aftur af eigin hækkunum. Við þurfum miklu markvissara samtal við atvinnulífið og auðvitað aðhald í ríkisfjármálum. Við getum farið yfir þetta allt en við eigum ekki síður að nota tækifærið til að kryfja það sem raunverulega gerir það að verkum að við stöndum hér enn einn ganginn í þingsal og ræðum hvernig við komum fólkinu okkar í var fyrir enn einum vaxtasirkusnum og enn einu verðbólguskotinu.
Ísland er í öfundsverðri stöðu. Það er algengasti frasi ríkisstjórnarinnar. Kona sem gaf sig á tal við mig í gær upplifir sig ekki í öfundsverðri stöðu því að síðasta vaxtahækkun bætir 70.000 kr. við afborganir á láninu hennar. Og maðurinn sagði sögu sína af fasteignakaupum í Mogganum um helgina undir fyrirsögninni: Mig langar bara að gráta, hann er heldur ekki í öfundsverðri stöðu, ekki heldur fólkið sem tók húsnæðislán því fjármálaráðherra lofaði lágvaxtalandið, ekki heldur fólkið sem glímir við síhækkandi leiguverð og ekki fjölskyldan hverrar vikulegu matarinnkaup hækka um mörg þúsund krónur við hverja búðarferð.
Við skulum viðurkenna vandann. Horfum á þá hluti sem ekki eru öfundsverðir. Verðbólga eftir faraldurinn byrjaði fyrr á Íslandi en annars staðar og virðist þrálátari þótt orkukreppan hafi verið minni hér en annars staðar. Stýrivextir eru margfalt hærri en hjá nágrannaþjóðunum. Ríkisstjórnin segir Ísland í öfundsverðri stöðu því að hlutfall skulda ríkissjóðs af þjóðarframleiðslu er lægra en hjá grannþjóðunum. Þetta er rétt svo langt sem það nær. En það sem skiptir máli er að hlutfall fjármagnskostnaðar af þjóðarframleiðslu er tvöfalt til þrefalt hærra en í nágrannalöndunum. Vaxtakostnaður hér samsvarar því sem stórþjóðir nota til að verja landamæri sín. Hvað er öfundsvert við þá stöðu? Ríkisstjórnin segir Ísland í öfundsverðri stöðu af því að hagvöxtur sé meiri hér en annars staðar. Það er líka rétt svo langt sem það nær, en hagvöxtur á hvern mann er minni hér en hjá nágrannaþjóðunum. Við höfum minni raunveruleg verðmæti til skiptanna fyrir hvern og einn innan landsteinanna og það er ekki öfundsverð staða.
Þessar einföldu staðreyndir draga fram grundvallarskekkjur á okkar landi og það væri auðvitað freistandi að skrifa þetta allt á ríkisstjórnina en ekki að öllu leyti sanngjarnt. Veruleikinn er sá að rætur þessa vanda liggja í gjaldmiðlinum en það er réttmætt að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að hafa setið í sex ár og ekki sýnt nauðsynlegt aðhald við stjórn ríkisfjármála. Það er ekki bara Viðreisn sem hefur komið fram með tillögur um að draga úr ríkisútgjöldum. Það hafa fleiri gert eins og SA og fjármálaráð. Það er óstjórn í fjármálaráðuneyti Sjálfstæðisflokksins. En eru víðtækar skattahækkanir vinstri flokkanna lausnin? Aðgerðir í þá veru eru ugglaust betri en afneitun ríkisstjórnarinnar og aðgerðaleysi, en ekki varanleg lausn. Ég tel hins vegar skynsamlegra að setja okkur markmið um að vextir og fjármagnskostnaður ríkissjóðs lækki. Skattfé almennings á ekki að fara í það að borga allt of háa vexti heldur í velferðar- og heilbrigðiskerfið. Þetta gerist ekki nema með því að breyta kerfinu og taka upp evru. Það tekur tíma en er eina varanlega lausnin svo að umræða eins og þessi hér í þinginu verði ekki endurtekið efni. Pólitísk menning hér á Íslandi hefur snúist um skammtímalausnir og óskhyggju um að við getum náð stjórn á efnahagsmálum okkar eftir séríslenskum leiðum. Það er ekki að ganga. Staðan nú er einmitt endurtekinn vitnisburður um það.
Það eru þrjár leiðir færar. Við getum fylgt aðgerðaleysisstefnu ríkisstjórnarinnar. Annar kostur er að fara skattahækkunarleið vinstri flokkanna. Báðar þessar leiðir eru skammtímalausnir. Þriðja leiðin er svo kerfisbreyting í gjaldmiðlamálum sem Viðreisn hefur talað fyrir og við viljum að þjóðin fái val um. Mitt markmið er að fyrir lok þessa áratugar verði öll íslensk heimili og fyrirtæki komin í þá öfundsverðu stöðu að geta sagt: Við búum við jöfn tækifæri. Við höfum sömu vexti og nágrannalöndin. Við höfum fyrirsjáanleika og stöðugleika. Við verjum meira fjármagni til heilbrigðis- og velferðarmála og minna í vexti en áður. Við eigum að sameinast um að verja stöðu þeirra sem lakast standa í þeirri verðbólguholskeflu sem nú gengur yfir en við verðum að takast á við grundvallarvandann um leið. Honum má ekki slá á frest, ella verðum við eins og hamstur á hjóli. Þeirri séríslensku og sársaukafullu hringekju verður að linna.