Staðan í efnahagsmálum, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umr.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir greinargóða yfirferð yfir stöðu mála. Það leikur enginn vafi á því að staða efnahagsmála er ekki eins og við myndum kjósa að hún væri. Þrátt fyrir það, eins og ráðherra benti hér á, er nú ekki allt á vonarvöl en betur má ef duga skal. Það er jákvætt að sjá nýjar tölur Hagstofunnar gefa til kynna að aðgerðir ríkisstjórnarinnar og vaxtahækkanir Seðlabankans séu nú að skila sér í baráttunni við verðbólguna. Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá því á föstudaginn síðasta lækkar ársverðbólgan um 0,4% og mælist nú 9,5%. Þótt vissulega sé of snemmt að fagna sigri er óskandi að okkur takist ætlunarverkið. Ef verðbólgan nú er borin saman við maí í fyrra eru hækkanir mestar í innfluttum vörum öðrum en eldsneyti. Því gætir áhrifa hækkandi heimsmarkaðsverðs á ýmsum nauðsynjum hér sem og annars staðar í kringum okkur. Að baki þeim hækkunum eru efnahagsþrengingar á heimsvísu sem rekja má til heimsfaraldursins, eins og við þekkjum, og ólögmætrar innrásar rússneskra stjórnvalda í Úkraínu.
Virðulegur forseti. Því má heldur ekki gleyma að hér naut fólk góðra vaxtakjara á lágvaxtaskeiðinu undanfarin ár. Þau kjör sköpuðust vegna farsællar hagstjórnar ríkisstjórnarinnar í heimsfaraldrinum og ýttu undir fjárfestingu á tíma þar sem hennar var þörf. Frá því að verðbólgan fór að láta á sér kræla hafa aðgerðir snúist um að ná niður verðbólgunni og verja stöðu þeirra sem viðkvæmust eru fyrir henni. Aðgerðir ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur hafa snúist um að forgangsraða aðgerðum þar sem þörfin er mest og koma til móts við þau sem erfiðast eiga með að ná endum saman. Þetta sést í fjölda aðgerða. Til að mynda voru húsnæðisbætur til leigjenda hækkaðar um 10% og barnafjölskyldur fengu viðbótarbarnabætur um mitt síðasta ár, eins og margoft hefur verið rakið hér. Í desember sl. voru húsnæðisbætur til leigjenda hækkaðar um 14% til viðbótar og boðaðar breytingar á barnabótakerfinu sem munu leiða til almennrar hækkunar barnabóta. Atvinnuhorfur hér á landi eru með besta móti og það er gleðiefni. Útflutningsverðmæti landsins jukust umtalsvert á fyrsta ársfjórðungi og námu um 267 milljörðum kr., sem er vel, en verðmætaaukningin kemur til vegna hærra verðs á sjávarafurðum og aukningu í ferðaþjónustu, eins og við var að búast þegar faraldrinum tók að slota.
Þótt mikið atvinnulíf kalli á margar vinnandi hendur og við njótum þess að hér er hátt atvinnustig og atvinnuleysi því lágt þá eru sömuleiðis umsvif í kerfinu mikil. Hér fer saman hagvöxtur og verðbólga en víða í löndunum í kringum okkur er vaxandi atvinnuleysi og samdráttur ofan á mikla verðbólgu. Sem betur fer búum við ekki við slíkt. Sömuleiðis hefur ríkisstjórnin átt í góðu samtali við aðila vinnumarkaðarins í aðdraganda þeirra skammtímasamninga sem gerðir voru um síðustu áramót og mun að sjálfsögðu eiga áframhaldandi samtal um aðgerðir til að tryggja langtímakjarasamninga um næstu áramót. Það er til mikils að vinna að ná niður verðbólgunni. Það er ekki til að gera lítið úr áhrifum verðbólgunnar og þess háa vaxtastig sem við búum við. Hins vegar þarf að halda þessu á lofti: Góð afkoma fyrirtækja er mikilvæg þjóðarbúinu en það segir okkur líka að atvinnulífið er aflögufært. Í fjármálaáætlun er enda boðuð aukin tekjuöflun til handa ríkissjóði, m.a. með hækkun veiðigjalda, fiskeldisgjalds, hækkun tekjuskatts á fyrirtæki og gjaldtöku á ferðaþjónustuna. Þar að auki eru breytingarnar á innheimtu gjalda af bifreiðum í útfærslu enda gríðarlega mikilvægt að ná þeim tekjustofni upp sem hefur rýrnað mjög með breytingum á samsetningu bílaflotans.
Virðulegur forseti. Við þurfum ekki að eltast við að leita að sökudólgum vegna þess ástands sem ríkir varðandi verðbólgu og vexti. Við þurfum öll að taka saman höndum og finna jafnvægið á milli aukins aðhalds og þess að tryggja áfram velferð landsmanna. Þannig kristallast áherslur ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur; að verja þau sem höllustum fæti standa með raunverulegum aðgerðum. Því miður er þetta ekki ný staða á Íslandi (Forseti hringir.) en þrátt fyrir erfiða tíma nú hjá ákveðnum hópi fólks þá mun birta til og við komumst í gegnum þennan skafl.