Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þetta um of en þó vil ég segja nokkur orð vegna þess að ég tók þátt í meðförum þessa máls en var svo erlendis þegar það var afgreitt úr nefnd og kom ekki að umræðu í 2. umr. heldur. Þetta frumvarp er byggt að miklu leyti á skýrslu svokallaðrar úttektarnefndar sem var falið að meta reynslu af starfi peningastefnunefndar, fjármálastefnunefndar og fjármálaeftirlitsnefndar í kjölfar sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Það er vissulega margt gott í þessu frumvarpi. Ég verð þó að nefna að þegar mælt var fyrir frumvarpinu lá fyrir að beðið var eftir skýrslu ytri matsnefndar þriggja óháðra sérfræðinga sem var áskilið í lögum um sameininguna. Það er algerlega ljóst að það hefði verið betra að doka með þetta frumvarp þangað til sú skýrsla hefði birst og alls ekki útilokað að frumvarpið hefði tekið einhverjum breytingum þegar það var lagt fram, ef það hefði verið gert.
Þótt báðar skýrslurnar telji reyndar að nokkuð vel hafi tekist til við sameininguna og báðar fjalli um nauðsynlegar breytingar á sérstaklega fjármálaeftirlitsnefnd, þá fjallar ytri matsnefndin líka talsvert um núverandi stjórnendastrúktúr og að hann sé ekki heppilegur til lengri tíma. Það felist áhætta í honum og hann setji of mikla áhættu á hendur eins manns. Þegar það er sagt þá held ég að það sé ljóst að frumvarpið styrkir kannski þennan strúktúr enn frekar. En það er vissulega rétt að það skýrir ábyrgðarkeðjuna og kannski má segja frumvarpið formgeri hina raunverulegu ábyrgð.
Ég tel líka eðlilegt að meiri hluti fjármálaeftirlitsins færist frá ytri matsnefndarfólki, meiri hlutinn sem sagt, og inn til Seðlabankans og það er líka gott að fela nefndinni stærra stefnumótandi hlutverk þannig að það sé meira í takt við hinar nefndirnar. En í ljósi þess hversu gríðarlega mikilvægu hlutverki Seðlabankinn gegnir og öllum ætti að vera það ljóst í núverandi efnahagsþrengingum þá finnst mér að nefndin hefði átt að senda frumvarpið aftur til ráðuneytisins til frekari vinnslu þar sem tekið hefði verið tillit til og skoðað hvaða ábendingar koma frá ytri matsnefndinni. Þess vegna ákvað ég að vera ekki á þessu nefndaráliti og að óbreyttu mun ég ekki greiða atkvæði með þessu frumvarpi.