Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi fyrir Úkraínu.

1074. mál
[20:00]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Það er sannur heiður að vera hér á Alþingi að taka þátt í því að færa úkraínsku þjóðinni gjöf frá þeirri íslensku í formi færanlegs neyðarsjúkrahúss, gjöf sem mun bjarga mannslífum þeirra sem særast í baráttunni fyrir lýðræði í Evrópu, gjöf sem mun tryggja að þær hetjur sem berjast fyrir lýðræðislegri framtíð Evrópu fái tækifæri til þess að koma heim til fjölskyldna sinna. Hernaður er okkur Íslendingum framandi enda erum við friðelskandi og herlaus þjóð. Við höfum sem betur fer litla innsýn í þær skelfilegu birtingarmyndir sem hernaður leiðir af sér. Þar skiptir hver mínúta máli og því mikilvægt að aðgengi að bráðasjúkrahúsþjónustu sé sem næst vígvellinum. Færanlegt neyðarsjúkrahús er því mikilvægt tól til að tryggja framtíð þeirra sem særast. Það að geta fært sjúkrahúsið til eftir því hvar vígvöllurinn er hverju sinni er mikilvægt til þess að draga úr þeim tíma sem það tekur að koma særðum hetjum undir læknishendur. Það er sönn ánægja að á bak við þingsályktun þessa standa allir flokkar á Alþingi og er það sönn trú mín og von að hið sama gildi um alla hv. þingmenn, að við sýnum það í verki að öll íslenska þjóðin stendur með frændum okkar í Úkraínu í baráttu þeirra gegn þeim sem vilja afnema lýðræði í Evrópu.

Virðulegi forseti. Slava Ukraini.