kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi fyrir Úkraínu.
Virðulegi forseti. Í dag eru liðnir 460 dagar frá innrás Rússa í Úkraínu. Við fordæmum áfram harðlega stríðsrekstur Rússlands gegn frjálsu og fullvalda ríki. Innrásin brýtur í bága við alþjóðalög og hefur kollvarpað öryggisumhverfi í vestrænum heimi. Við Íslendingar getum sagt að stærð sé afstæð í alþjóðlegu samhengi. Stuðningur Íslands við Úkraínu hefur verið sterkur og höfum við eftir fremsta megni veitt Úkraínu táknrænan og fjárhagslegan stuðning og nú ályktar Alþingi að fela utanríkisráðherra að festa kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi til notkunar fyrir særða hermenn og almenna borgara. Er það í anda þess mannúðarstarfs sem við Íslendingar höfum lagt áherslu á. Forseti Úkraínu óskaði eftir umræddum stuðningi á fundi með forsætisráðherra Íslands, Katrínu Jakobsdóttur, í Kænugarði og ítrekaði beiðni sína á fundi þeirra í Helsinki. Við erum að svara kallinu.
Virðulegi forseti. Samstaða um stuðning við Úkraínu hér á Alþingi er þverpólitísk. Það eru formenn allra flokka sem sæti eiga á Alþingi sem koma að tillögunni og vænti ég þess að hún verði samþykkt hér á næstu dögum. Stuðningur okkar hefur verið sambærilegur að umfangi og önnur Norðurlönd leggja af mörkum og mikilvægt að svo verði áfram. Það þarf enginn að velkjast í vafa um það að við Íslendingar stöndum með gildum okkar og áherslum. Æðsti réttur sérhverrar manneskju er rétturinn til lífs, frelsis og öryggis. Með þessu verkefni gefst okkur tækifæri á að lina þjáningar fórnarlamba þessa hræðilega stríðs.
Ég vil að lokum, herra forseti, lýsa yfir eindregnum stuðningi Framsóknar við málið og vænti þess að það verði samþykkt í þingsal samhljóða.