Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[20:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti í 857. máli, aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

Undirbúningur þingsályktunartillögunnar sem nefndarálitið fjallar um hefur staðið yfir síðastliðin ár. Það má segja að fyrsti áfanginn í vinnunni hafi verið unninn í desember 2020 þegar haldið var geðheilbrigðisþing þar sem fjöldi fólks tók þátt í umræðum með fulltrúum samtaka og stofnana sem koma að geðheilbrigðismálum. Niðurstöður þeirrar vinnu voru nýttar við gerð þingsályktunartillögu um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030, sem samþykkt var á Alþingi 15. júní 2022. Í febrúar það sama ár var starfshópur skipaður sem hafði það hlutverk að fylgja eftir þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 og samanstóð af helstu hagaðilum í geðheilbrigðismálum á landsvísu. Þingsályktunartillaga þessi um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027 er byggð á niðurstöðum samráðshópsins og umsögnum sem honum bárust.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti meiri hlutans sem liggur frammi sem prentað þingskjal og á vef Alþingis.

Meiri hluti velferðarnefndar telur aðgerðaáætlun þessa fela í sér jákvæð og mikilvæg skref í átt að því að hrinda í framkvæmd framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum og tryggja aðgengi að skilvirkri og notendamiðaðri geðheilbrigðisþjónustu.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti velferðarnefndar árétta eftirfarandi sérstaklega:

Nefndin fjallaði sérstaklega um batamiðaða nálgun í geðheilbrigðismálum, en við umfjöllun málsins komu fram sjónarmið á þá leið að réttara væri að leggja minni áherslu á sjúkdómsgreiningar og að frekar yrði litið á andlegar áskoranir sem skiljanleg viðbrögð við óeðlilegum aðstæðum. Við umfjöllun málsins kom fram að krafa um sjúkdómsgreiningar væri sterk í geðheilbrigðisþjónustu en varast þyrfti að sjúkdómsvæða geðrænar áskoranir og tilfinningalegt álag notenda. Þá var rætt um ávísanir og notkun geðlyfja, en fram komu sjónarmið um að taka þyrfti tillit til meðferð notenda á slíkum lyfjum.

Meiri hlutinn bendir á í því samhengi að á meðal hlutverka embættis landlæknis er að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og að fylgjast með þróun lyfjanotkunar, þar á meðal notkunar geðlyfja. Mikilvægt er að við framkvæmd áætlunar þessarar sé gætt að framangreindum sjónarmiðum sem fram komu í umsögnum notendasamtaka. Eru þær áherslur í samræmi við þær aðgerðir áætlunarinnar sem miða að notendasamráði og þar sem notendur koma að mati á árangri.

-Aftur að hugtakinu batamiðuð nálgun. Það kom fram fyrir nefndinni að ekki lægi til grundvallar sameiginlegur skilningur á því hugtaki. Fram kom fyrir nefndinni að heilbrigðisráðuneytið leitast við að nota sambærilegar skilgreiningar og þær þjóðir sem íslensk stjórnvöld vinna mest með og þar eru skilgreiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar lagðar til viðmiðunar en í skýrslu stofnunarinnar frá 2021, um leiðbeiningar um geðheilbrigðisþjónustu í nærumhverfi, er einmitt fjallað um batamiðaða nálgun. Í ljósi ábendinga og umfjöllunar fyrir nefndinni beinir meiri hlutinn því til heilbrigðisráðuneytis að unnið verði að samræmingu eða að því að koma á sameiginlegum skilningi allra sem starfa að geðheilbrigðismálum á hugtakinu batamiðuð nálgun í geðheilbrigðisþjónustu, enda er mikilvægt að sameiginlegur skilningur sé til grundvallar. Bendir nefndin á að geðráð, sem stofna á samkvæmt aðgerð 3.A.1, geti verið æskilegur vettvangur fyrir vinnu til sameiginlegs skilnings.

Þá fjallaði nefndin um mönnun í geðheilbrigðiskerfinu og mikilvægi þess að mönnun sé þverfagleg og í samræmi við þjónustuþörf á hverju stigi geðheilbrigðisþjónustu. Við meðferð málsins var m.a. bent á að þær fagstéttir sem starfa í geðheilbrigðisþjónustukerfinu gegna mikilvægu hlutverki í að veita bæði aðstandendum og notendum gagnreynda heilbrigðisþjónustu. Í greinargerð þingsályktunartillögunnar kemur m.a. fram að sjónum sé beint að því að meta mönnun í geðheilbrigðisþjónustu í samræmi við hlutverk og verkefni á öllum stigum, en einnig að skilgreina hvaða hæfni starfsfólk þurfi að búa yfir á hverju þjónustustigi á hverjum stað. Meiri hlutinn leggur á það áherslu að þær þrjár aðgerðir sem lúta sérstaklega að mönnun nái fram að ganga. Auk þess telur meiri hlutinn mikilvægt að unnið verði að því að hæfniviðmið verði útgangspunktur í starfsauglýsingum heilbrigðisstofnana.

Þá fjallaði nefndin sérstaklega um kandídatsár sálfræðinga með hliðsjón af reglugerð þar að lútandi og ábendingum sem bárust nefndinni. Við meðferð málsins komu fram sjónarmið þess efnis að bráðabirgðaákvæði reglugerðarinnar hefði í för með sér að þeir sálfræðingar sem hefja störf á vinnumarkaði hefðu ekki þá reynslu og þekkingu sem æskileg væri til sjálfstæðra starfa, en sem þeir hefðu annars haft ef þessi hópur hefði aðgang að verklegri þjálfun, svokölluðu kandídatsári. Meiri hlutinn bendir á að aðgerð 2.B.1 miðar að því að sérnám heilbrigðisstétta í geðheilbrigðisfræðum verði fullfjármagnað, þar á meðal kandídatsár sálfræðinga, og er tilgangur aðgerðarinnar að tryggja uppbyggingu og þróun þekkingar í fræðunum. Framkvæmdin gengur út á uppbyggingu og fjármögnun ákveðins fjölda stöðugilda í geðhjúkrun, geðlækningum og klínískri sálfræði í samstarfi við háskóla og heilbrigðisstofnanir. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram komu við meðferð málsins hvað varðar þennan þátt aðgerðaáætlunarinnar varðar og leggur sérstaka áherslu á mikilvægi þess að kandidatsári í sálfræði verði komið á sem fyrst.

Nefndin fjallaði um geðheilbrigðisþjónustu fyrir viðkvæma hópa, sem var töluvert komið inn á í umfjöllun nefndarinnar og hjá þeim gestum sem komu fyrir nefndina. Í aðgerð 2.C.1 í aðgerðaáætluninni er kveðið á um að verkefnahópur skilgreini hlutverk og verkefni veitenda geðheilbrigðisþjónustu, greini samfellu og skort þar á og komi með áætlun um aðgerðir til úrbóta. Í umsögnum og á fundum nefndarinnar komu fram ábendingar varðandi þennan lið. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem komu fram við meðferð málsins og telur mikilvægt að geðheilbrigðisþjónusta sé aðgengileg öllum og að sérstaklega verði tekið tillit til viðkvæmra hópa við framkvæmd áætlunarinnar. Á það ekki einungis við fatlað fólk heldur aðra viðkvæma hópa sem nýta sér geðheilbrigðisþjónustu og eru þær áherslur meiri hlutans í samræmi við þá áherslu á að fólk fái þjónustu í takt við sínar þarfir. Þá bendir meiri hlutinn á að í greinargerð er rakið að setja þurfi í forgang að þróa og samþætta nánar tiltekna þjónustuferla, svo sem fyrir einstaklinga með taugaþroskaröskun eða tvígreiningar eins og fíkn og alvarlegan geðvanda, fyrir hópa innflytjenda eða fólk með langvinnan alvarlegan heilsuvanda. Meiri hlutinn undirstrikar að mikilvægt sé að útrýma gráu svæðunum við veitingu geðheilbrigðisþjónustu og beinir því til ráðuneytisins og framkvæmdaaðila áætlunarinnar að það verði gert og einmitt undir þessari aðgerð, 2.C.1.

Þá aðeins um breytingartillögur nefndarinnar. Þær eru svo sem ekki umfangsmiklar en meiri hluti nefndarinnar leggur í fyrsta lagi til þá breytingu á frumvarpinu að við samstarfsaðila aðgerðar 1.A.1 bætist embætti landlæknis. Sú aðgerð snýst um sérhæfða þjónustu í barneignarferlinu og þjónustu við verðandi foreldra og foreldra með ung börn. Fram kemur í umsögn embættis landlæknis að það hafi leitt norrænt samstarfsverkefni á vegum norrænu ráðherranefndarinnar sem bar heitið „1000 fyrstu dagarnir“ og tekur embættið nú þátt í áframhaldandi norrænu samstarfi á grundvelli þess. Verkefnið beinist einkum að því að skoða núverandi stöðu og tækifæri til umbóta í meðgönguvernd, ung- og smábarnavernd, leikskólum og dagvistun til að styðja sem best við geðheilsu ungra barna. Búið er að taka saman mikið efni þessu tengt en til þess að tryggt sé að sú þekking og ráðleggingar sem mótaðar voru við þá vinnu séu hafðar til hliðsjónar við framkvæmd aðgerðar 1.A.1 er lagt til að embætti landlæknis verði tilgreint sem samstarfsaðili þeirrar aðgerðar.

Þá er lögð til breyting á samstarfsaðila í aðgerð 1.B.1. Samhliða innleiðingu samræmds verklags á heilbrigðisstofnunum um mat á sjálfsvígshættu er mikilvægt að byggja upp samstarf við félagsþjónustu og lögreglu á þessu sviði. Þannig bætist við sveitarfélög, dómsmálaráðuneyti og lögregluembættin sem samstarfsaðilar. -

Þessar tvær breytingar eru einu efnislegu breytingarnar en síðan leggur meiri hlutinn til nokkrar breytingar sem eru tæknilegs eðlis og þarfnast ekki skýringar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti hv. velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir nefndarálit meiri hlutans rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Guðrún Hafsteinsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir, Oddný G. Harðardóttir og Óli Björn Kárason.