Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[20:22]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Þjóðin veit að það þarf að gera stórátak í þessum málefnum, geðheilbrigðismálum, en það er eins og meiri hlutinn á þingi hafi ekkert frétt af því, hafi ekki frétt af löngum biðlistum, hafi ekkert frétt af úreltu húsnæði og að margir upplifi bara fordóma í þessum málaflokki. Hvers vegna segi ég að það sé eins og meiri hlutinn hafi ekki frétt af því? Það er vegna þess að ef maður skoðar fjármögnun verkefnisins þá á að setja baunir í það núna fyrsta árið, nokkrar baunir, aðeins fleiri á næsta ári. Það verður ekki fyrr en á næsta kjörtímabili sem á að setja alvöru peninga í þennan málaflokk. Ég verð bara að segja það að ég hefði talið réttara að vera með lágstemmdari þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun þegar það eru ekki settir meiri fjármunir í þetta, þegar menn tala ekki um einhverja ákveðna forgangsröðun. Þetta er einfaldlega í mjög miklu ósamræmi við annað sem er í gangi í samfélaginu. Jú, jú, það má eflaust nýta 150 milljónir til góðra verka, fjármagnið á þessu ári. En ef við skoðum bara það sem fer í úrbætur í húsnæði Seðlabankans, hvað er það mörgum sinnum hærri upphæð? Er það tífalt eða er það tuttugufalt hærri upphæð? Þetta mál — þá er ég ekki að segja að textinn sjálfur sé ekki fallegur, mjög gott um hann að segja og allt það, en þeir fjármunir sem stefnt er á að setja í þennan málaflokk lýsa ekki þörfinni eða því að það eigi að gera eitthvað í samræmi við þessa tillögu. Ég vil bara segja að í þessari þingsályktunartillögu fara ekki saman þeir fjármunir og það mikla orðskrúð sem felst í henni.