aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni andsvarið. Ég varð ekki vör við neina spurningu í andsvarinu. Það sem ég vil þá draga saman á þessum tveimur mínútum sem ég hef hér er kannski sá hugur og það samstarf sem maður sér að er komið í gang á bak við aðgerðirnar hverja og eina. Mér fannst það skila sér mjög vel inn í vinnu velferðarnefndar. Maður fann að það er fólk sem er byrjað að vinna verkefnin og er tilbúið að vinna í þeim áfram og láta þessar aðgerðir verða að veruleika. Mörg þessi verkefni sem þarna eru tengjast ýmiss konar samráðsverkefnum sem nú þegar eru í gangi. Nægir að nefna t.d. þessa breytingartillögu um aukið samstarf heilbrigðisstofnana, sveitarfélaga og lögregluembættanna um forvarnir gegn sjálfsvígum. Tillagan um breytingu á þeirri aðgerð skilaði sér til nefndarinnar vegna þess að það er byrjað að vinna þetta verkefni. Þessi vinna er í gangi og það er farið að sýna sig hvernig þarf að þétta samstarfið enn frekar. Það eru svo auðvitað mjög mikilvæg verkefni hérna eins og t.d. þetta norræna verkefni um fyrstu þúsund dagana sem er búið að fjárfesta í og er hér verið að koma til framkvæmda með því að tengja það aðgerðum sem styðja við börn og foreldra á fyrstu þúsund dögum barnanna og svo mætti lengi telja.