Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[20:27]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það var auðvitað engin spurning í þessu stutta innleggi mínu hérna, ég er bara að upplýsa þjóðina um það að þessi þingsályktunartillaga um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum er ekki fjármögnuð fyrr en á næsta kjörtímabili þannig að þessi fögru orð hér um að það eigi að gera allt fyrir alla eru ekkert í samræmi við þá fjármuni sem settir eru inn í þessa áætlun. Við erum með langa biðlista. Við erum með úreltan húsakost og margir upplifa fordóma. Maður spyr bara: Hvaða augum líta þingmenn þetta verkefni? Jú, það kemur fram í fjármögnuninni. Það á nánast ekkert að gera á yfirstandandi kjörtímabili en svo er miklum áætlunum varpað fram í framtíðinni. Mér finnst að menn ættu þá að vera hérna með hófstilltari áætlun ef meiri peningar en þetta eru ekki til. Við í Flokki fólksins teljum bara áherslurnar í samfélaginu ekki réttar. Við erum að fara með hátt í 20 milljarða í byggingu ríkisbanka en það er ekki hægt að setja peninga í þennan málaflokk, sem þjóðin veit að grætur á peninga. Ég held þessa ræðu til þess að reyna að opna augu stjórnarinnar fyrir því að setja fjármuni í aðkallandi verkefni en ekki einhver gæluverkefni, glyshallir og mammonshallir sem Framsóknarmenn, jafnvel utan af landi, setja í forgang. Það er ótrúlegt.