Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[20:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni andsvarið og enn átta ég mig ekki á því að hann hafi lagt fram neina spurningu varðandi málið og ég átta mig heldur ekki á túlkun hans á fjármögnun aðgerðanna. Vissulega eru verkefni sem koma til framkvæmda á seinni hluta tímabilsins. Það eru líka verkefni sem eru í fullum gangi eins og ég hef farið hér yfir. Það hafa miklar framfarir orðið í geðheilbrigðismálum undanfarin ár en við Íslendingar stöndum líka eins og aðrar þjóðir frammi fyrir fjölmörgum áskorunum sem þarf að takast á við til að ná framförum í þessum málaflokki. Ef ég nefni bara dæmi um framfarir í málaflokknum þá hafa geðheilbrigðisþjónusta og snemmtæk úrræði hjá heilsugæslunni verið efld. Það hafa farið fram þarfagreiningar varðandi húsnæði og það er verið að byggja húsnæði til að þjónusta heilbrigðiskerfið og það er eitt af þeim verkefnum sem liggja fyrir og eru bara í fullum undirbúningi. Það sem við þurfum að efla enn frekar er sett fram í þessari aðgerðaáætlun og það er algerlega í samræmi við þær áherslur sem við sjáum hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, t.d. um mikilvægi þess að viðeigandi og tímanleg úrræði standi fólki til boða áður en sjúkdómsástand þróast.