aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Forseti. Mig langar að spyrja hv. framsögumann málsins aðeins út í fjármögnunina. Það sem sló mig svolítið er að samkvæmt þessu ítarlega kostnaðarmati sem fylgdi aðgerðaáætluninni, sem var ótrúlega gott að fá í nefndinni, er gert ráð fyrir 150 millj. kr. árið 2026 í lið 4.A.3, um eflingu gagnreyndrar heilbrigðisþjónustu í nærumhverfi vegna vægs til miðlungs alvarlegs geðræns vanda, og 360 millj. kr. eiga að fara árin 2027 og 2028, en þetta er ekki endurspeglað í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem er stefnuplagg ríkisstjórnarinnar. Mig langaði bara að spyrja af hverju. Við lestur fjármálaáætlunar sést að það á bara að veita 100 millj. kr. í geðheilbrigðisstefnu innan heilsugæslunnar árin 2024 og 2025 og ekkert fjármagn er eyrnamerkt fyrir árin 2026–2028. Mig langaði að spyrja hv. framsögumann málsins, Líneik Önnu Sævarsdóttur, hvort hún hafi tekið eftir þessu og hvort hún sé með einhver svör við þessu. Hvar eru peningarnir sem ætlaðir eru í verkefnið út frá kostnaðarmatinu sem fylgdi aðgerðaáætluninni?