Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[20:34]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta velfn. (Halldóra Mogensen) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svörin en mér finnst voða skrýtið að þetta stefnuplagg ríkisstjórnarinnar, fjármálaáætlun til næstu fjögurra ára, endurspegli ekki það kostnaðarmat sem fylgir með aðgerðaáætlun ráðherra og væntanlega ríkisstjórnarinnar. Það vekur alla vega ekki traust, skal ég segja, sem er miður, því að þetta er einmitt málaflokkur sem verður að gera það. Við verðum að efla traust fólks sérstaklega þegar kemur að geðheilbrigðismálum, að fólk trúi því að það sem ríkisstjórnin segist ætla að gera verði gert.

En mig langar til að spyrja að öðru. Það var umræða í nefndinni og kom fram í umfjöllun í nefndaráliti meiri hlutans um kandídatsár sálfræðinga, árið eftir að sálfræðingar útskrifast, þegar þeir geta fengið þjálfun í starfi, væntanlega í opinberri heilbrigðisþjónustu, fá þjálfun í starfi áður en þeir fara svo og vinna sjálfstætt. Þetta virðist vera eina aðgerðin í aðgerðaáætluninni sem á að svara þessari þörf á mönnun innan kerfisins en það á ekki að fjármagna þetta fyrr árið 2026. Og hvar erum við í dag? 2023. Þannig að það er eftir þrjú ár sem á að fjármagna þetta kandídatsár. Mér finnst það vera algerlega galið, sérstaklega í ljósi þess að það hefur verið til reglugerð um þetta síðan 2013 um að það eigi að fjármagna þetta, sem er inni í ráðuneytinu. Það er búið að fresta henni á hverju einasta ári, þá kemur önnur reglugerð sem frestar hinni reglugerðinni um að fjármagna kandídatsár sálfræðinga og þetta er búið að gerast síðan 2013. Þetta eru ekki háar upphæðir, þetta myndi kosta um 500 milljónir, skilst mér, á ári. Þetta myndi svara að einhverju leyti þörfinni á mönnun innan kerfisins og er gríðarlega mikilvægt faglega líka. (Forseti hringir.) Ég verð með breytingartillögu ásamt hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur um að flýta þessu og það eigi bara að fjármagna þetta kandídatsár strax. Ég spyr hv. þingmann hvort hún sé sammála mér um að það eigi að gera það (Forseti hringir.) og hvort hún muni mögulega styðja þá breytingartillögu.