Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[20:55]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir áhrifaríka og góða ræðu og ég tel að hún hljóti að hafa opnað augu þeirra sem hlýddu á hana fyrir því að það sé hægt að gera mun betur og við eigum að gera betur. Þá á ég ekki endilega við aðgerðaáætlunina sjálfa heldur fjármögnun á henni. Hv. þingmaður hefur tekið þátt í undirbúningi málsins. Ég rekst á þetta mál hér og sé bara mjög gott mál sem á ekkert að gera í fyrr en eftir einhver ár, miðað við þá fjármuni sem eru að fara í þetta, ekki fyrr en á næsta kjörtímabili. Það kemur mér mjög spánskt fyrir sjónir að menn vilji starfa með þessum hætti, og þess vegna er rétt að spyrja: Hvers vegna er það? Telur hv. þingmaður að þeir sem standa að þessu verklagi, skrýtna verklagi, hafi í rauninni ekki trú á því hvaða góðu afleiðingar þessi áætlun hefði ef hún væri fullfjármögnuð? Ef hún væri fullfjármögnuð þá skilaði hún jafnvel fleiru en bættri geðheilsu, sem er náttúrlega aðalatriðið í þessu fyrir þá sem þurfa á þessari þjónustu að halda, jafnvel líka efnahagslegum ávinningi og kostum fyrir samfélagið þannig að fólk nýtist til góðra verka. En auðvitað á ekki að meta alla hluti til fjár og alls ekki heilsuna. En það vaknaði sú spurning hjá mér hvort það séu mögulega einhverjir fordómar sem séu enn þá að læðast í þessum málum sem hindra það að svona gott mál fái raunverulega framgang.