aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Forseti. Ég þakka andsvarið. Ef ég gæti nú svarað þessu á einhvern einfaldan hátt. Jú, kannski er þetta ekkert svo flókið. Mig grunar nefnilega að staðan sé sú að það er einn maður sem situr í fjármálaráðuneytinu sem heldur utan um budduna og ég held að hann ráði því dálítið hversu mikið fjármagn fer í málaflokkana. Við sjáum það að þegar þingsályktunartillaga Viðreisnar var samþykkt einróma hér í þingsal á sínum tíma um að niðurgreiða sálfræðiþjónustu þá voru fagnaðarlæti og það var fögnuður víða í samfélaginu. Maður heyrði um mikið af fólki sem fylltist von þegar þessi þingsályktunartillaga var samþykkt. Það leið varla korter þangað til að hæstv. fjármálaráðherra mætti í viðtal og sagði bara: Ég ætla ekki að fjármagna þetta. Þannig að það er nokkuð ljóst hver það er sem ræður og mögulega er það vandamálið. Þegar verið er að tala um ferlana og maður veltir fyrir sér hvert faglega ferlið sé þegar verið er að ákvarða fjármagn í málaflokka — er einhver þarfagreining sem á sér stað? Er einhver fagleg þarfagreining og beiðni um fjármagn sem er byggð á þeirri þarfagreiningu? Ég held að það sé ekki þannig. Ég held að ráðherrar fái bara einhverja X tölu til sín og svo þurfa þeir bara einhvern veginn að vinna úr því. Þetta er svo galin nálgun af því að ef við eigum einhvers staðar að vera framsýn og auka lífsgæði fólks til framtíðar og spara gríðarlegan kostnað fyrir ríkissjóð á sama tíma þá er það með því að grípa snemma inn í og tryggja andlega heilsu fólks. Það bara hlýtur að vera. Það er gríðarleg skammsýni að fjármagna þennan málaflokk svona illa því þetta sparar engan pening. Engan. Þetta kostar okkur fullt.