Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[20:59]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa skýringu þó svo að ég eigi bágt með að trúa henni. En hvað veit ég? Ég eyði nú mestu af mínum tíma norðan heiða, kem hingað til borgarinnar og upplifi ýmsa nýja hluti. En ég gæti alveg eins trúað því að þetta risti aðeins dýpra og þetta sé bara samdóma álit, m.a. hjá forsætisráðherra, alla vega hef ég ekki heyrt nokkurn mann úr þeim ágæta flokki, Vinstri grænir segjast þeir enn þá vera, tala fyrir því að þetta mál skuli fá aukna fjármuni. Og ég gat ekki betur heyrt en að hv. þingmaður sem mælti fyrir þessu máli, Framsóknarmaðurinn hér fyrr í kvöld, segðist vera stolt yfir þessari áætlun þannig að mér finnst það vera svona heldur bratt að kenna hæstv. fjármálaráðherra einum um þetta. En ég vona svo sannarlega að þeir hafi hlýtt á þessa ræðu og þessa umræðu sem hefur farið hérna fram í kvöld, ég á ekki von á öðru, og það opni augu þeirra fyrir því að þetta lítur ekki vel út. Þetta mál lítur bara mjög illa út. Það hefur verið rætt í samfélaginu að þessi málaflokkur kalli á sérstaka athygli og við vitum að fólk hefur komið að lokuðum dyrum sem þarfnast geðhjálpar. Það er alveg ólíðandi. Ég vona svo sannarlega að það verði breyting og menn verði ekki eins stoltir af þessu og láti reyna á þessa breytingartillögu sem verður lögð fram. Það er alla vega ákveðin mótsögn í þessu, að leggja fram mikla áætlun sem á síðan að fjármagna að mestu á næsta kjörtímabili, svo á að koma enn meira stökk á því þarnæsta. Þetta er fáránlegt.