aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Forseti. Ég er ekki að halda því fram að fjármálaráðherra sé einn ábyrgur fyrir skorti á fjármagni í geðheilbrigðismál frekar en skorti á fjármagni í önnur málefni. Ákvarðanir sem eru teknar í fjármálaráðuneytinu hljóta að endurspegla vilja ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki eins og öðrum. Ég er kannski gjörn á að trúa því að það sé skammsýni sem ráði frekar en einhver mannvonska. Ég er þar sjálf, ég held að það sé gríðarleg skammsýni í því þegar verið er að ákveða fjármagn í málaflokka og auðvitað er sú skammsýni lituð af vissri hugmyndafræði sem liggur að baki hjá þeim stjórnmálaflokkum sem ráða. Mér finnst við vera alltaf að stíga skref í átt að því að bæta þennan málaflokk á einhvern hátt, að horfa á hann á heildstæðari hátt en bara alls ekki nægilega hratt og mér þykir það leiðinlegt því eins og ég sagði í minni ræðu þá þykir mér þessi aðgerðaáætlun góð. En þegar fjármagnið fylgir ekki þá er hún ekki trúverðug. Einnig finnst mér hún ekki alveg nægilega framsýn af því að þekking okkar á geðheilbrigðismálum er núna að taka rosa stökk fram á við og stefna stjórnvalda í málaflokknum verður líka að endurspegla þessa þekkingu sem við höfum og búum yfir. Hún krefst stefnubreytingar sem er mun stærri heldur en er í þessu plaggi og hún krefst fjármagns. Það munu allir græða á því, það fjármagn er fjárfesting sem mun koma til baka margfalt.