Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[21:04]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 2. minni hluta velferðarnefndar. Á því nefndaráliti er ég einn en ég vil samt taka það fram strax í upphafi að ég styð heils hugar breytingartillögu 1. minni hluta, frá Halldóru Mogensen og Oddnýju G. Harðardóttur, um að sjá til þess að sérnám heilbrigðisstétta í geðheilbrigðisfræðum verði fullfjármagnað án tafar. Það er búið að lofa þessu og það á auðvitað að standa við það.

Sú aðgerðaáætlun sem hér er til umfjöllunar er byggð á áður samþykktri þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030. Sú stefna tók þá mið af þingsályktun um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030. Að baki þessari þingsályktunartillögu liggja því að minnsta kosti þrjár þegar samþykktar þingsályktanir.

Í aðgerðaáætluninni er fjallað um 27 nánar tilgreind verkefni og lagt til að heilbrigðisráðherra vinni að þeim verkefnum næstu fimm árin og að gert verði ráð fyrir verkefnunum í fjárlögum hvers árs. Jafnframt skuli uppfæra aðgerðaáætlunina árlega, líkt og tíðkast t.d. um fjármálaáætlun.

Þjóðin veit að þörf er á aðgerðum til að bæta geðheilbrigðisþjónustu og það sem fyrst. Ítrekað hefur verið fjallað um hve erfitt það getur verið fyrir fólk með geðheilbrigðissjúkdóma að komast í rétt úrræði innan heilbrigðiskerfisins. Biðlistar eru langir, húsakostur úreltur og margir upplifa fordóma í núverandi kerfi. Því er afar mikilvægt að stjórnvöld hefjist handa sem fyrst við að efla geðheilbrigðisþjónustu. Brýnt er að þær aðgerðir sem miða að því að bæta aðgengi fólks að geðheilbrigðisþjónustu komi til framkvæmda sem fyrst. Til þess þarf fjármagn. 2. minni hluta er það minnisstætt þegar samþykkt voru lög um niðurgreiðslu sjúkratrygginga á sálfræðiþjónustu. Nánast samdægurs gaf fjármála- og efnahagsráðherra það út að lögin yrðu að öllum líkindum ekki fjármögnuð í komandi fjárlögum. Það sýnir álit þessarar ríkisstjórnar á geðheilbrigðismálum. Það rættist og það hefur verið viðvarandi verkefni stjórnarandstöðunnar að kalla eftir viðhlítandi fjármagni til niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu allar götur síðan.

Hvernig er fjármögnun þeirra aðgerða sem hér er mælt fyrir um háttað? Samkvæmt samþykktri stefnu í geðheilbrigðismálum átti við gerð þessarar aðgerðaáætlunar að meta fjárhagsleg áhrif aðgerða. Ef litið er til annarra aðgerðaáætlana, svo sem stefnumótandi byggðaáætlunar eða aðgerðaáætlunar gegn hatursorðræðu, má sjá að þar er iðulega tiltekið kostnaðarmat fyrir einstakar aðgerðir. Það er ekki svo í þessari áætlun. Aðgerðir eru tilteknar, ábyrgðaraðilar tilgreindir en kostnaðarmatið vantaði inn í áætlunina þegar hún var lögð fram og rædd við fyrri umræðu. Nú fyrir skömmu, rúmum tveimur mánuðum eftir framlagningu áætlunarinnar, barst velferðarnefnd skjal frá heilbrigðisráðuneytinu með tímasettu kostnaðarmati einstakra aðgerða.

Það má segja að öll umfjöllun um ágæti þeirra aðgerða sem boðaðar eru falli í skuggann af því sem kemur fram í kostnaðarmati heilbrigðisráðuneytisins. Samkvæmt því er aðeins gert ráð fyrir fjármagni vegna 10 af 27 aðgerðum í fjárlögum næsta árs. Ef tekið er tillit til þess að áætlunin verði uppfærð árlega héðan í frá, má í raun segja að þessi aðgerðaáætlun geri aðeins ráð fyrir að 10 af 27 aðgerðum verði fjármagnaðar, enda má vel vera að önnur áform falli niður eða frestist þegar aðgerðaáætlunin verður endurskoðuð á næsta ári.

Af þeim 6,7 milljörðum kr. sem áætlað er að þurfi til að fullfjármagna allar 27 aðgerðir þessarar áætlunar gera stjórnvöld ráð fyrir að veita 657 millj. kr. fram að næstu kosningum. 90% fjármagnsins sem þarf til að ráðast í þær aðgerðir sem þessi áætlun fjallar um verður ekki tryggt af sitjandi ríkisstjórn. Geðheilbrigðismál eru mikilvæg og mega ekki sitja á hakanum fram að næstu kosningum.

Ekki er hægt að fjalla um áætlun sem þessa án þess að taka tillit til þess hvernig ríkisstjórnin hefur gengið til verka við framfylgd annarra þingsályktana. Flokkur fólksins lagði fram þingsályktunartillögu um hagsmunafulltrúa eldra fólks á síðasta kjörtímabili. Tillagan var samþykkt á Alþingi árið 2021, en með henni var stjórnvöldum falið að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa aldraðra. Ráðherra málaflokksins lét hjá liggja að stofna starfshóp um verkefnið þar til upphaflegur skilafrestur starfshópsins samkvæmt ályktuninni var liðinn. Síðan bárust þær fregnir í vor að ráðherra ætlaði ekki að fylgja ályktuninni með því að leggja fram frumvarp. Það er með öllu ótækt að ríkisstjórnin fylgi ekki samþykktum ályktunum Alþingis. Það er eins með þá þingsályktunartillögu og þessa. Með henni felst engin trygging fyrir því að ráðist verði í umræddar aðgerðir. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa þegar sýnt það í verki að ályktanir þingsins eru aðeins tillögur í þeirra augum, en ekki tilmæli.

Eins og hefur komið fram þarf enginn að furða sig á því að við í þingflokki Flokks fólksins séum tortryggin úr í þingsályktunartillögur. Þessi þingsályktunartillaga er frábært mál. Þarna er verið að gera tillögu um geðheilbrigðisáætlun fyrir árin 2023–2030 en því miður, þegar við horfum á þessa áætlun, þá er þetta eins og stór fallegur konfektkassi í sellófanpappír með fallegri slaufu og fallegri skreytingu en þegar umbúðirnar fara af og við kíkjum í kassann þá eru bara örfáir molar þar og þeir molar sem þar eru eru því miður lélegir. Ófjármagnaðir. Allir góðir molarnir þar sem virkilega er hugsað um að fjármagna kerfið, fjármagna áætlunina, eru einhvers staðar í framtíðinni, settir á ríkisstjórn sem tekur við völdum eftir næstu kosningar.

Eins og komið hefur fram hérna sagði hv. formaður nefndarinnar og framsögumaður nefndarálits meiri hlutans að hún væri stolt af þessari áætlun, þetta væri hin besta áætlun að hennar áliti en hún lítur þannig út að árið 2023 koma 150 milljónir, 2024 eru það 226 milljónir og 2025 280 milljónir. Síðan byrjar þetta að hækka og endar í 1 milljarði og 669 milljónum árið 2030. Ég hefði snúið þessu við. Ef við hefðum verið að byrja á 1,6 milljörðum hefði ég sagt að við værum á réttri leið. En ég hefði fagnað ógurlega ef við hefðum virkilega hlustað á það sem er þörfin í þessum málaflokki og værum þá hreinlega að setja 5–6 milljarða bara strax á næsta ári í þetta eða á þessu ári, byrja á þessu ári og fram á næsta ár, því það er sannarlega þörf fyrir það. Við sjáum biðlistana í kerfinu hjá börnum. Það eru biðlistar til þess að komast á biðlista til að komast á biðlista í greiningum barna. Þetta gildir líka þegar börnin ná ekki einu sinni inn á biðlistana og verða fullorðin að því er talið er við 18 ára aldur, þá detta þau út úr kerfinu og þurfa að finna annan biðlista til að reyna að fá hjálp. Það er kallað eftir hjálp í geðheilbrigðismálum í skólum. Það er ófremdarástand í geðheilbrigðismálum hjá þjóðinni vegna vanfjármögnunar, líka vegna þess að það vantar fólk. Í umfjöllun nefndarinnar kom fram að það væri hægt að útskrifa 25 einstaklinga til að koma inn í kerfið og svo sannarlega veitir ekki af því en áætlunin gerir ekki ráð fyrir því að fjármagna það.

Það er sagt að heilsugæslustöðvar eigi að sjá um geðheilbrigðismálin. Það er ekki rétt. Ég veit það frá fyrstu hendi að það er langt frá því að þar sé ásættanleg aðstaða. Og ofan á allt þetta er húsnæðisskortur geðdeildar og svo hvernig hugsunargangurinn gagnvart þessum sjúkdómum er. Það virðist vera lenskan í þessum málaflokki eins og hann er í dag að gefa lyf, svæfa liggur við viðkomandi þannig að hann fari bara upp í hillu og verði ekkert fyrir, láti ekkert í sér heyra. Það eru engar áætlanir um að hjálpa fólki til að lifa, eins og nýjustu kenningar eru, án lyfja, styðja fólk og fylgjast með því, fylgjast með því hvaða áhrif lyfin hafa því það eru til mörg mismunandi lyf og sum eru hreinlega skaðleg sumum einstaklingum. Því miður, og ég hef rekið mig á það, eru einstaklingar með geðsjúkdóma sem eru í kerfinu hornreka. Ef þeir hafa ekki eitthvert bakland þá eru þeir í virkilega slæmum málum. Það hefur verið bent á að staðan í þessum málum endurspeglast bæði í fólki sem er í fangelsum og á götunni, fólki sem hefði verið hægt að hjálpa ef fjármagnið hefði verið til staðar. En fjármagnið er ekki til staðar, það er ekki á leiðinni. Það er einhvers staðar þarna í framtíðinni.

Það er reiknað með 6,7 milljörðum í heildarpakkann þegar upp verður staðið. Það eru 657 milljónir sem eiga að vera innan tímabils þessarar ríkisstjórnar. Setjum það í samhengi við það að við erum nýbúin að halda fund Evrópuráðsins og í hann fór á þriðja milljarð króna. Þá vantaði ekki peninga. Ef við getum og leyfum okkur að setja svo mikla peninga í svona fund, glansfund, þá ber okkur skylda til, myndi ég segja, að setja tvöfalt, jafnvel þrefalt meira í geðheilbrigðismálin og spýta virkilega í í heilbrigðismálum. Það er mín forgangsröðun og Flokks fólksins. En það er örugglega ekki, það sést vel á þessari aðgerðaáætlun, forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar.

Það er eiginlega sorglegt að þegar við gætum verið að sýna virkilega góðan lit í geðheilbrigðismálum þá erum við ekki að gera það. Við sáum álit og viðbrögð þessarar ríkisstjórnar í geðheilbrigðismálum endurspeglast líka í því að þegar átti að fara að byggja nýjan spítala við Hringbraut, og er sem betur fer verið að byggja, það er frábært framtak, þá var geðdeildin ekki þar inni. Ef við ætlum að nútímavæða og vera skynsöm og fylgja fólki eftir og reyna virkilega að hjálpa því fólki sem er með geðsjúkdóma þá væri þetta það fyrsta sem við ættum að gera af því sú aðstaða sem þar er boðið upp á í dag og verður boðið upp á næstu árin og áratugina samkvæmt þessu er gjörsamlega óviðunandi og er okkur til háborinnar skammar.

Við eigum og okkur ber að hlusta á þá sem þekkja til í þessum málum og fara eftir ráðleggingum þeirra. Það fór ekki á milli mála í umfjöllun nefndarinnar. Þar kom fullt af fólki sem hafði virkilega vit á þessum málum, frá Hugarafli, frá Öryrkjabandalaginu, Fagfélagi sálfræðinga í heilsugæslu, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Janusi endurhæfingu, Þroskahjálp, Einhverfusamtökunum, Sjúkraliðafélagi Íslands og fleiri. Það komu 22 umsagnir um málið. Við hefðum þess vegna vel getað gert þetta almennilega, gert þetta þannig að sómi væri að, gert þetta að miklu meiru en bara fallegum umbúðum, gert þetta að virkilega góðu innihaldi og virkilega stigið gott skref strax í þessum málum. En því miður, þetta eru fallegar umbúðir. Það er í sjálfu sér ekki hægt að vera á móti svona fallegum umbúðum en maður verður fyrir gífurlegum vonbrigðum þegar maður sér svona mál og að það sé gert svona lítið úr því á þessu kjörtímabili og einhvern veginn verið að reyna að ýta málinu frá sér þannig að það verði vandamál einhverra annarra eftir árið 2025. Það eru sorgleg málalok.