aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Herra forseti. Við erum hér að ræða tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027, en fjármögnunin er reyndar til 2030. Þetta mál er þannig að það er umbúðir og það afhjúpar líka að innihaldið er ekki alveg í samræmi við þá verkáætlun sem sett er fram, ef maður fer að fletta í gegnum þessa þingsályktunartillögu. Eins og ég hef fjallað um fyrr í umræðunni þá erum við hér með málaflokk sem grætur á fjármuni, grætur á raunverulegar aðgerðir. Við erum með biðlista, við erum með aðstæður þannig að sjúklingar koma að lokuðum dyrum, við erum með húsakost sem kallar á úrbætur og við glímum við, því miður, fordóma í þessum málaflokki. Ef maður skoðar fjármögnunina á þessari aðgerðaáætlun, ef svo má kalla, þá fer maður að spyrja sig: Stafar fjárskorturinn af fordómum? Hafa þeir sem lögðu þessa fjármuni fram ekki trú á því að þessi áætlun muni skila árangri? Ef við berum þetta saman, herra forseti, við annað það sem verið er að leggja fjármuni í samfélaginu nú á þessum tíma, hér hefur t.d. verið nefndur þessi mikli fundur Evrópuráðsins sem einkennist helst af litlum tíðindum og glæsilegri vopnasýningu og löggæslu, þá fer þetta ekki alveg saman. Ef við skoðum fjármunina núna fyrstu tvö, þrjú árin í áætluninni, á starfstíma ríkisstjórnarinnar, þá er það kannski rétt ríflega tíundi hluti af því sem þessi ágæti fundur kostaði, sem allir flokkar stjórnarliðsins eru mjög stoltir af og jafnvel fleiri flokkar á þingi, mjög ánægðir með þennan kostnað og vilja örugglega að halda annan svona fund ef það væri kostur á því. En þegar kemur að fjármögnun í þennan málaflokk sem grætur á peninga og þjóðin hefur fullan skilning á að þurfi að bæta, þá eru engir fyrirsjáanlegri lausir aurar fyrr en á þarnæsta kjörtímabili og jú, einnig kemur góður slurkur á næsta kjörtímabili.
Þetta er hráskinnaleikur og við verðum einfaldlega að upplýsa um það að svona ganga hlutirnir ekki. Að vera að tala um eitthvert átak í geðheilbrigðismálum með þessa aðgerðaáætlun sem er ekki fjármögnuð, það er hráskinnaleikur. Við sjáum að peningarnir streyma úr ríkissjóði í málefni útlendinga, 15 milljarðar og jafnvel meira á þessu ári og það er ekki að sjá nokkurn enda á því í þeim málaflokki og ef það á að ræða það er því ýtt út af borðinu. Fjármunirnir sem renna í þann málaflokk sem eru gríðarlega miklir fást ekki ræddir með gagnrýnum hætti. Ég held að við verðum að gera betur og ég trúi ekki öðru en að þjóðfélagið setji spurningarmerki við þetta. Við horfum upp á það að á árinu 2023 verða settar 150 milljónir í áætlunina og 226 á næsta og síðan fer ekkert að tikka inn í þessa áætlun fyrr en árið 2026, það er á næsta kjörtímabili. Á sama tíma eru bankarnir að skila hér á fyrstu þremur mánuðum ársins 20 milljarða kr. hagnaði. Við horfum upp á að það er verið að innrétta húsnæði Seðlabankans, sem er að hvetja okkur til aðhalds, fyrir 3 milljarða bara núna þessa dagana. Auk þess skilst manni að það hafi verið farið í gríðarlegar endurbætur fyrir nokkru fyrir aðra eins upphæð. Ef við berum þessa fjármuni saman við það sem samfélagið er, held ég, sammála um að setja í þennan málaflokk, miklu meira og bæta þennan málaflokk, þá er eitthvert hrópandi ósamræmi þar. Það sýnir að hinir háu stjórnarherrar í Stjórnarráðinu eru ekkert í tengslum við fólkið í landinu. Þeir vilja fá að vera við háborð í Evrópu eða í einhverjum fínum sölum, eru farnir að máta sig þar, og vilja ólmir halda einhverjar sýningar. Síðan er lítilmagninn látinn bíða í dyrunum, jafnvel á geðdeildum landsins. Það er sorglegt hvernig staðan er, mjög sorglegt. Og bankaskatturinn var lækkaður á sama tíma og þessir þættir eru skildir út undan
Ég tel að við getum gert betur. Það er augljóst og við eigum að gera betur. Það er skömm að þessu. Það er skömm að því hvernig þessi málaflokkur er fjármagnaður. Ég vona svo sannarlega að hinir háu stjórnarherrar láti það verða að einhverju leyti að veruleika að geta útlistað fyrir fólki að það skipti máli hver stjórnar. Það er ekki að sjá að það skipti máli hver stjórnar þegar kemur að þessum málaflokki og þeim sem glíma við þessa sjúkdóma. Það er ekki að sjá nokkra áherslu á þennan málaflokk nema þá á næsta og þarnæsta kjörtímabili. Það er auðvitað ekki hægt að bjóða upp á það.