aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Virðulegur forseti. Við ræðum aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum og ég mun að sjálfsögðu styðja hana og ég held að það sé mjög mikilvægt að við vinnum aðgerðaáætlun sem þessa. Mig langar ekki að taka undir þau sjónarmið sem hér hafa heyrst, að það vanti alltaf meiri peninga. Við höfum séð gífurlega aukningu í fjármunum til heilbrigðismálaflokksins á síðustu árum þannig að þetta snýr að því hvar áherslur okkar liggja, hvernig við forgangsröðum verkefnum og hvernig við vinnum þau og til þess eru svona þingsályktunartillögur mjög góðar.
Mig langaði, virðulegur forseti, að koma hér á framfæri ákveðnum sjónarmiðum sem kannski tengjast ekki beint þessari aðgerðaáætlun en þó þessu mikilvæga sviði. Það er umræðan um nýtt geðsvið Landspítalans og hvar það eigi að vera staðsett. Ég hef notað tækifærið þegar það hefur verið rætt — nú liggur fyrir að það á að byggja og það er algerlega nauðsynlegt að endurnýja geðdeild Landspítala – háskólasjúkrahúss eða að við eignumst nýtt geðsjúkrahús því húsakosturinn er orðinn úreltur og aðstaðan ekki góð — og lýst þeirri skoðun minni að það sé ekki góð hugmynd að byggja slíka deild eða slíkan spítala við Hringbraut. Ég tel að það ætti að leita annarra svæða þar sem væru meiri tengsl við náttúruna. Öll heilbrigðisstarfsemi þarf ekki að vera á vestasta odda höfuðborgarsvæðisins. Það eru mjög takmörkuð samlegðaráhrif með geðsviðinu og öðrum sviðum Landspítalans sem staðsett eru við Hringbraut. Það er mjög mikilvægt og ég ætla að koma þessum sjónarmiðum alltaf á framfæri þegar við ræðum þennan málaflokk. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við lendum ekki einhvern veginn bara þar, að það sé búið að taka þessa ákvörðun.
Þá langar mig líka að leggja áherslu á að ég held að það sé ofboðslega mikilvægt að við séum með bráðadeildir. Eðli málsins samkvæmt þurfa bráðadeildir að vera opnar 24 tíma sólarhringsins, sjö daga vikunnar. Það að við séum með bráðadeild geðsviðs sem er opin á skrifstofutíma gengur auðvitað ekki upp. Annaðhvort erum við bara með eina bráðadeild sem tekur við öllum bráðatilvikum, hvort sem þau eru á sviði geðheilbrigðis eða um að ræða brotinn handlegg eða hjartaáfall eða annað, eða að bráðadeild geðsviðs sé opin 24/7.
Að þessu sögðu þá held ég að það sé gott að við séum með svona aðgerðaáætlun. En ég vil líka sjá svona aðgerðaáætlun gagnvart fíknisjúkdómum. Fíknisjúkdómar eru auðvitað hluti af geðheilbrigðismálum. Ég sé að hér er tekið á fjölþættum vanda. Það er gott og það er mikilvægt. En það er löngu tímabært, virðulegur forseti, að við séum með sérstaka aðgerðaáætlun þegar kemur að fíknisjúkdómum. Skaðaminnkunarúrræði eru eitt og við höfum eytt töluverðum tíma í að ræða þau í þessum sal og ég er hlynnt slíkum aðgerðum en það per se getur ekki verið það eina sem við leggjum til þegar kemur að þessum gríðarlega mikilvæga heilbrigðisþætti sem snýr að fíknisjúkdómum. Ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra til að koma fram með slíka aðgerðaáætlun þar sem bæði er tekið á skaðaminnkandi aðgerðum, forvörnum, meðferðinni og öðrum þáttum því að það er vissulega þörf á því.