aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Herra forseti. Það er nú nýlunda að heyra það að fjármunir skipti ekki máli. Vissulega kom það fram í umræðunni í dag í fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra, það var ýmislegt sem renndi stoðum undir það að fjármunum væri ekkert sérstaklega vel varið, það væri einhver óráðsía hvað varðar fjármuni í heilbrigðiskerfinu ef maður skildi niðurstöðuna rétt. Þessir fjármunir sem við erum að setja í kerfið eru ekki að skila eins miklu og sambærilegir fjármunir í samfélögum sem við berum okkur saman við. Það er vegna þess að við erum tiltölulega ungt samfélag og kerfið er nánast í molum. Hv. þingmaður virðist ekki upplifa það þannig en það er alveg ljóst að þeir sem eru að sækja læknisþjónustu og þurfa að bíða löngum stundum á slysadeild eða eftir aðgerðum eða fá ekki tíma hjá lækni upplifa það auðvitað þannig að ástandið sé ekki gott.
Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann um er í fyrsta lagi: Finnst hv. þingmanni ekki undarlegt, miðað við hversu brýnt málefni við erum að ræða, að vera ekkert að fjármagna það fyrr en á næsta kjörtímabili af einhverju viti og jafnvel þarnæsta? Ef við erum með brýnt verkefni sem við höfum trú á þá ættum við auðvitað að setja umtalsverða fjármuni í það núna þannig að þeir skiluðu árangri. Ég get alveg verið sammála því sjónarmiði að auðvitað er ekki gott að moka peningum endalaust í eitthvert kerfi, það þarf auðvitað að spyrja sig að því hvað menn eru að fá fyrir aurinn, en þegar ekki er hægt að hafa fyrir fólk sem veikist skyndilega opna bráðamóttöku allan sólarhringinn í samfélagi sem vill vera í fremstu röð á öllum sviðum þá hljótum við að geta gert betur.