Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[21:35]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta er svolítið það sem við erum búin að heyra frá mörgum í stjórnarandstöðunni í dag, það er eins og hér sé allt í kaldakoli. Það er bara ekki svo. Raunveruleikinn á Íslandi er ekki með þeim hætti. Þess vegna tek ég ekki undir þau sjónarmið að það sé alltaf hægt að kalla eftir meiri og meiri peningum. Þegar horft er, virðulegur forseti, til þeirra fjármuna sem hafa farið inn í heilbrigðiskerfið, hreina aukningu á síðustu árum, þá eru þetta gígantískar upphæðir. Þess vegna tel ég að við þurfum einmitt að horfa á áherslur okkar og forgangsröðun og tryggja það að við fáum sem besta og mesta þjónustu fyrir þessa peninga sem við verjum í þennan mikilvæga málaflokk sem eru heilbrigðismálin og þar eru geðheilbrigðismálin að sjálfsögðu undir. Síðan ég settist á þing haustið 2016 þá hafa þessi mál svo sannarlega verið á dagskrá og geðheilbrigðisstefna og geðheilbrigðisáætlanir hafa verið hér ítrekað til umræðu og fjármunum hefur verið varið sérstaklega í þessa málaflokka. Hér er stundum talað eins og íslenska heilbrigðiskerfið sé í molum. Ég held að það sé nokkurn veginn það sem hv. þingmaður sagði orðrétt, að hér sé allt í molum. Það er ekki svo. Á öllum alþjóðlegum mælikvörðum kemur íslenska heilbrigðiskerfið vel út. Það er vissulega þannig að það er skortur á fagmenntuðu starfsfólki. Álagið á stofnunum okkar er mikið og það þurfum við að laga. En þetta er líka staðan í þeim flestum löndum sem við berum okkur saman við. En ég skal alveg vera í liði með hv. þingmanni í því að fjölga þeim sem geta starfað á þessu sviði. Við þurfum að fjölga fagmenntuðum í heilbrigðisgeiranum og við þurfum að tryggja að þau geti unnið við þannig aðstæður að álagið sé ekki of mikið. Það get ég sameinast um með hv. þingmanni en ekki að mála skrattann á vegginn og segja að hér sé allt í molum því það er alls ekki svoleiðis. Fjöldi fólks fær góða þjónustu hjá heilbrigðisstofnunum landsins á hverjum degi.