Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[21:38]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég kannast ekki við það að hafa málað einhvern skratta á vegg. Ég var einfaldlega að fara í gegnum tillögu um aðgerðir í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027. Það gerði ég, herra forseti. Í henni koma fram fjölmörg atriði sem þarf að lagfæra, bara heilmörg. Það er heilsugæslan og það er sjálfsvígshætta, að tryggja starfsfólk, rætt um samfélagsáhrif og ég veit ekki hvað. Er þetta eitthvert ómark, herra forseti? Er þessi áætlun eitthvert ómark? Það sem ég er að segja er einfaldlega að það á ekki að setja neina peninga í þessa áætlun fyrr en á næsta kjörtímabili og jafnvel því þarnæsta. Það er enginn að mála skrattann á vegginn. Það er bara verið að fara í gegnum þessa aðgerðaáætlun sem á ekkert að ýta í gang fyrr en ríkisstjórnin er farin frá völdum. Það er auðvitað eitthvað sem ég held að þingmenn stjórnarliðsins ættu að setja spurningarmerki við og spyrja sína ráðherra og forystumenn: Hvað er í gangi? Hvers vegna vilja þeir ekki vera með sínar áætlanir ef þeir hafa trú á þeim núna á kjörtímabilinu heldur að koma þeim á þá sem taka við? Ég vonast til þess að við hv. þingmaður eigum uppbyggilegt samtal um þetta. Það er alla vega ljóst að hér er mikil þingsályktunartillaga um aðgerðir sem á í rauninni ekkert að hrinda í framkvæmd fyrr en að ríkisstjórnin er farin frá og það er afar sérkennilegt. Ég held að allir sanngjarnir menn geti verið sammála um að það eigi að setja spurningarmerki við svoleiðis áætlun.