Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.

857. mál
[21:40]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég náði ekki hvort spurningum var beint til mín í síðara andsvari en hv. þingmaður talar um að það vanti fjármögnun í þessa áætlun. Ég var fyrst og fremst að tala um það hér að ég held að áherslan hafi verið of mikil á það að það þurfi alltaf meiri peninga, Ég held að þetta snúist um forgangsröðun og það hvernig við ætlum að vinna þessi mál. Þegar farið er yfir þessar aðgerðir hér þá er auðvitað svo að verið er að vinna að þessu víða og þetta snýst svolítið um forgangsröðun. Þetta snýst um það t.d. að þróa skólaheilsugæslu í framhaldsskólum með sérstaka áherslu á geðrækt og forvarnir. Ég vona að það hafi verið gert á síðustu árum. En það er líka mikilvægt að setja þetta á oddinn og þetta sé forgangsmál. Að velja og innleiða gagnreynda nálgun í geðrækt og almennar forvarnir í grunnskóla — þetta eru allt hlutir sem eru í gangi, að hluta til eru þetta hlutir sem eru í gangi í samfélaginu, hjá stofnunum okkar en þarna er verið að setja fókusinn, setja upp kannski geðræktargleraugun, ef hægt er að orða það með þeim hætti, og það þýðir ekki alltaf að það þurfi að setja aukamilljónir á hverja aðgerð. Allar þessar stofnanir sem hér eru tilgreindar og allir þeir aðilar sem eru hér ábyrgðaraðilar eða samstarfsaðilar eru í dag fjármagnaðir úr ríkissjóði.