aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023-2027.
Virðulegi forseti. Eitt af því sem hefur einkennt þingstörfin undanfarna mánuði er að það er verið að leggja fram heilmikið af stefnum og aðgerðaáætlunum á hinum ýmsu sviðum. Það er gott og blessað að við séum að sjá svart á hvítu inn í huga ríkisstjórnarinnar, hvert þau telji sig vera að stefna. Í stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030, sem þessi ákveðna tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem við erum að fjalla um núna byggir á, er horft fram á við, til sjö, átta ára, og reynt að benda á það hvert við viljum stefna. En það sem ég hef tekið eftir þegar maður kafar aðeins dýpra ofan í bæði stefnur og aðgerðaáætlanir sem ríkisstjórnin kemur með, er að það eru tvö atriði sem standa alltaf upp úr. Ég gæti sennilega notað þessa ræðu á morgun þegar við ræðum landbúnaðaráætlun og svo kannski þegar við ræðum matvælaáætlun daginn eftir. Stefnurnar eru oftast með mjög loðin markmið og framtíðarsýn þar sem lagðir eru fram ákveðnir áherslupunktar en plaggið er í rauninni uppfullt af setningum sem segja ekki neitt. Stuðla skal að betri geðheilsu Íslendinga. Frábært markmið. En hvernig ætlum við að gera það? Síðan þegar kemur að aðgerðaáætlunum er kannski búið að njörva þetta aðeins niður með því að segja hver beri ábyrgð á hverju og við hverju eigi að vinna í samstarfi við. En það eru engar tímasetningar. Það er engin nánari skilgreining á því hvað eigi að nást. Það hefur verið kennt í verkefnastjórn í mörg ár að nota kerfi þar sem þú skilgreinir allar aðgerðir eins nákvæmlega og þú getur, ert með einhver mælanleg gildi fyrir þær, það sé eitthvað sem hægt er að framkvæma, þær eigi við og séu tímasettar. Ekkert af því stendur hér. Þannig að fyrsta atriðið við allar þessar áætlanir og stefnur er að það er alls ekki nógu vel skilgreint hvernig eigi að gera þetta. Ég hef aðeins séð eina stefnu sem hefur verið lögð fyrir hér þar sem var farið aðeins dýpra ofan í það hvað var meint með hverju og það var stefna hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, um þekkingarsamfélagið. Ég nefndi það einmitt við hæstv. ráðherra að það væri nú gott að sjá að þarna væri farið aðeins dýpra.
Hitt atriðið sem er því miður vandamálið við allar þessar aðgerðaáætlanir og í rauninni flestar þingsályktunartillögur sem bornar eru fram af ríkisstjórninni er að það virðist aldrei þurfa að ákveða neitt um fjármagn. Ef fjármagn er einhvers staðar gefið upp þá er það í fjármálaáætlun og ekki fyrr en á næsta kjörtímabili eða alla vega nógu langt inni í framtíðinni þannig að fólk verði örugglega búið að gleyma því að þetta eigi að gera.
Ég held að við þurfum að fara að leggja meiri vinnu í þetta. Ef við ætlum að eyða tíma í það að skrifa og fjalla um þessar stefnur og aðgerðaáætlanir þá verða þær að vera eitthvað sem hægt er að benda á og nýta í framtíðinni. Það má ekki endalaust vera að búa til skjöl með fallegum loforðum sem síðan eru aldrei efnd. Það er von mín að við getum unnið þvert á flokka í því að reyna að bæta það.
Þegar kemur að þessari ákveðnu þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum þá þarf ekki að fjölyrða um það hversu mikilvægt það er að gera stórt átak í geðheilbrigðismálum. Þar er mjög mikilvægt að við setjum sérstakan fókus á forvarnir og skaðaminnkandi aðgerðir. Það að fólk hafi ekki aðgang að sálfræðiþjónustu orsakar það einfaldlega nokkrum árum seinna fyrir fjöldamargt fólk, því miður, að það verður annaðhvort öryrkjar eða sjúklingar inni á geðdeildum sem kostar okkur margfalt á við það sem forvarnir kosta. Þetta er eitthvað sem við verðum hreinlega að vinna saman í að snúa við þannig að við séum ekki að búa til samfélag þar sem við erum að leggja alla peningana í viðbragðið en ekki forvarnirnar.
Það var ánægjulegt að heyra hér á undan hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur tala um mikilvægi skaðaminnkunar og mikilvægi þess að bráðaþjónusta sé opin allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Það er von mín að það sé hægt að finna leiðir og fjármagn til að ná þessum aðgerðum fram, ekki bara að lofa þeim, ekki bara tala um að þetta væri fallegt, heldur virkilega gera eitthvað í málunum. Ekki bara eitthvað sem kannski verður gert á næsta kjörtímabili ef við munum þá enn þá eftir því.