Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[21:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um matvælastefnu til ársins 2040. Eins og kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans höfum við fengið á fund okkar marga gesti og fengið margar umsagnir. Með þessari tillögu er verið að marka matvælastefnu til ársins 2040 og henni er ætlað er að vera leiðandi í ákvarðanatöku til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja fæðu- og matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru. Stefnan verður höfð til hliðsjónar við stefnumótun í landbúnaði, sjávarútvegi og fiskeldi og þættir sem til umfjöllunar eru í henni verða að sjálfsögðu hafðir að leiðarljósi.

Í tillögunni eru m.a. tiltekin þau markmið að Ísland verði í fremstu röð að því er snertir gæði framleiddra matvæla, að sjálfbærir framleiðsluhættir verði byggðir á vistkerfisnálgun og varúð, að virðiskeðja matvælaframleiðslu verði tryggð með því að fullnýta afurðir og að matvælaframleiðsla verði kolefnishlutlaus með náttúrumiðuðum lausnum í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Til að ná þessum og öðrum markmiðum tillögunnar er lögð áhersla á sex þætti: sjálfbærni í matvælaframleiðslu, samfélag, fæðuöryggi, matvælaöryggi, þarfir neytenda og rannsóknir, nýsköpun og menntun.

Umsagnirnar sem við fengum í atvinnuveganefnd voru almennt jákvæðar og flestir fögnuðu því að ráðherra hefði lagt nýja matvælastefnu fram. Þar var m.a. bent á mikilvægi þess að tryggja heilnæma og vandaða matvælaframleiðslu og að bændur og matvælaframleiðendur leiki stórt hlutverk við að efla fæðuöryggi og viðnámsþol samfélagsins. Undir það tek ég, ekki síst nú á tímum þar sem stríð ríkir í Evrópu, þá er gríðarlega mikilvægt að við höfum hér mikið fæðuöryggi.

Umsagnaraðilar lögðu líka mikla áherslu á mikilvægi fæðuöryggis, þar á meðal að það þyrfti að efla innlenda framleiðslu, styðja við þróun nýrra matvæla sem og að mæta kröfum neytenda um matvælaöryggi og minni sóun. Þar þurfum við að gera stórátak, Íslendingar, í minni sóun á mat. Það er ekki eðlilegt að þriðji hver innkaupapoki fari í ruslið. Þess vegna leggjum við til breytingu á orðalagi liðar 4.1 í tillögunni og hann hljóði þá þannig: „Tryggja þarf að matvæli sem framleidd eru hér á landi séu áfram örugg og heilnæm sem og aðflutt matvæli.“ Breytingartillögunni er ætlað að tryggja að matvæli sem framleidd eru á Íslandi verði áfram örugg og heilnæm, enda er það mat meiri hlutans að mikil verðmæti séu fólgin í gæðum íslenskra matvæla og tryggja þurfi eftir fremsta megni að svo verði áfram. Við þekkjum auðvitað þá umræðu sem hefur verið ríkjandi hér heima, um muninn á íslenskri matvælaframleiðslu og aðfluttri og innfluttri, m.a. er kemur að sýklalyfjanotkun sem og öðru. Eitt af því sem við ræddum mjög mikið í nefndinni eru villandi merkingar matvæla og það var á það bent að þörf væri á skýrum upprunamerkingum til að auðvelda neytendum að taka upplýstar ákvarðanir við val á matvörum. Eitt af því sem við höfum kannski séð dæmi um er m.a innflutt kjöt sem er hakkað einhvers staðar í einhverri vél sem boltuð er hér í íslensku matvælaframleiðslufyrirtæki og síðan verður það að íslenskum hamborgara eða kryddlegnu íslensku kjöti, en sem er auðvitað bara aðflutt. Við erum sammála um það í meiri hlutanum að á þessu þurfi að skerpa og segjum að bæta þurfi upprunamerkingu matvæla svo neytendur séu vel upplýstir um uppruna og innihald matvæla. Það er hægt að gera það með einföldum hætti og þarf ekki að vera öðruvísi en svo að geta skannað, þar sem allflestir eru komnir með síma, merki á vörunni og hægt væri að sjá upplýsingar um bæði innihald, uppruna o.s.frv. Það er mjög mikilvægt.

Eins og ég sagði áðan þá bar á góma óhófleg notkun sýklalyfja í evrópskum landbúnaði og þörf okkar á betra regluverki til að koma í veg fyrir útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Undir það tökum við svo sannarlega í meiri hluta nefndarinnar. Bent var á mikilvægi rannsókna, menntunar og nýsköpunar í landbúnaði til að stækka innanlandsmarkað og auka útflutning á okkar góðu vörum. Í lok árs 2022 var skipaður starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins en einnig komu að þeirri vinnu matvælaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Þeim starfshópi er ætlað að móta framtíðarsýn um áætlun til tíu ára til að sporna gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería.

Mikil áhersla var lögð á mikilvægi þess að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og kolefnislosunar. Í því felst losun vegna innflutnings á matvælum og að lágmarka kolefnisspor matvælaframleiðslu. Ég vil í þessu sambandi segja að það kemur kannski enn þá betur fram í landbúnaðarstefnunni sem við eigum eftir að fjalla um. Það er mikilvægt verk fram undan að ákveða í rauninni hvernig við teljum kolefnisspor matvæla sem kannski koma erlendis frá á bryggjuna og eru þá á núlli og byrja svo að telja, það er ekki heppilegt, eða þá það að við séum ekki að miða við íslenskar aðstæður þegar við erum að finna út hvað tilheyrir kolefnisspori matvæla.

Það var líka um það rætt að nauðsynlegt væri að hafa öflugt og traust raforkuflutningskerfi til að styðja við uppbyggingu landbúnaðar og matvælaöryggi. Tekið var fram að svæðisbundnar innviðafjárfestingar væru mikilvægar til að stuðla að hagkvæmri matvælaframleiðslu og fjölbreyttri atvinnustarfsemi í dreifbýli. Í umsögnum kom fram ákall um samstarf framleiðenda, sveitarfélaga og stjórnvalda við að fylgja matvælastefnunni eftir og að henni fylgdi að sjálfsögðu nægilegt fjármagn. Bent var á að þegar kæmi að matvælaframleiðslu ætti að huga að líffræðilegri fjölbreytni og mikilvægi hringrásarhagkerfisins, til að mynda að verndun lands og sjávar og að efnahagslegum og félagslegum þáttum ekki síður en umhverfislegum. Undir það sjónarmið tekur meiri hlutinn enda er sjálfbærni matvælaframleiðslu lykilþáttur í farsæld vistkerfis jarðar. Við í meiri hlutanum teljum að það sé mikilvægt að stigin verði sem flest skref sem miða að því að uppfylla þarfir nútímans án þess að skerða möguleika til framtíðar, hvort sem er félagslega, efnahagslega eða umhverfislega líkt og kveðið er á um í Ríó-yfirlýsingunni.

Í tillögunni er gert ráð fyrir því að gerðar verði og birtar áætlanir til fimm ára í senn. Það komu fram ábendingar um að aðgerðaáætlun sú sem á að fylgja þessari stefnu verði að vera unnin í miklu og góðu samráði við hagaðila og að í henni þurfi að koma fram skýrar aðgerðir sem séu tímasettar og kostnaðarmetnar. Um þetta er ráðuneytið auðvitað mjög meðvitað og verður þetta væntanlega sett í samráð.

Það eru fleiri breytingar sem við leggjum hérna til, m.a. á e-lið, þar sem segir: „Matvælaöryggi standi á traustum stoðum og öll framleiðsla miði að heilbrigðu umhverfi, heilsu fólks og heilbrigði dýra.“ Við bætum inn „góðri“ heilsu fólks því að það skiptir máli. Síðan gerum við þá breytingu á lið 2.4 að í staðinn fyrir að segja að stuðla verði að uppbyggingu innviða, þá segjum við að tryggja þurfi uppbyggingu innviða. Sama á við um lið 2.5, þar sem við segjum líka að tryggja verði að endurnýjanleg orka verði aðgengileg. Að öðru leyti vísast til nefndarálitsins.

Undir það skrifa hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Teitur Björn Einarsson, Þórarinn Ingi Pétursson og sú sem hér stendur.