matvælastefna til ársins 2040.
Herra forseti. Þetta er að mörgu leyti ágætismál svo langt sem það nær. Það sem mér finnst áhugavert, svona í ljósi samþykkta dagsins og verka dagsins hjá Vinstri grænum, er að það sem við eigum að vera með í öndvegi í matvælastefnunni er sjálfbærni. Það er nefnilega sjálfbærni. Hvernig fer það saman að ræða hér sjálfbærni að kvöldi eftir að hafa samþykkt fyrri part dags að auka vélarafl, óheft, togskipa sem eru í uppi harðalandi? Það er alveg ljóst hvað það leiðir af sér. Það leiðir af sér að það er hægt að vera með miklu þyngri veiðarfæri sem eru miklu skaðlegri en ella. Við samþykkjum hér klukkan þrjú lög um nánast vistmorð og erum síðan hér að kvöldi til að tala um að sjálfbærni eigi að vera í öndvegi. Ég vil því spyrja hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur hvernig þetta fari saman og hvernig þetta fari saman við þá stefnu sem flokkurinn samþykkti á síðasta landsfundi.