Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kýs nú að ræða þetta mál sem við erum með hér til umfjöllunar. Hitt málið var afgreitt í dag og ég tel að það sé fullrætt af minni hálfu og þurfi ekkert að útskýra það nánar. Við erum ósammála, ég og hv. þingmaður, hvað það varðar og það er bara eins og það er. Þetta mál og allt sem í því er og sú aðgerðaáætlun sem mun fylgja í kjölfarið kemur til með að taka mið af sjálfbærni og Ríó-samþykktinni eins og ég fór yfir. Ég tel mig ekki þurfa að svara þessu neitt ítarlegar heldur en það, við erum ósammála um fyrra málið og það er bara allt í lagi að það sé þannig. En um þetta mál tel ég að við séum sammála og mér heyrðist hv. þingmaður vera frekar jákvæður gagnvart því sem er vel. Það eru ekki mörg mál hæstv. matvælaráðherra sem hann er jákvæður fyrir en mér heyrist hann vera þokkalega sáttur við þetta svona heilt yfir litið. Ég vona bara að hann sjái ljósið í því að það sé hægt að framfylgja því sem hér er undirliggjandi, hvort sem það heitir sjálfbærni eða fjölbreytileiki vistkerfa eða hvað annað það nú er sem þarna er undir.