matvælastefna til ársins 2040.
Herra forseti. Ég hef djúpan skilning á því að hv. þingmaður vilji ekki ræða þessa hluti saman því þeir eru ósamræmanlegir. Þetta snýr ekkert endilega að því að sá sem hér stendur sé ósammála hæstv. matvælaráðherra, heldur kemur það einfaldlega skýrt fram í stefnu þeirri sem var samþykkt 17.–19. mars sl. á Akureyri af flokksfélögum hennar að þeir eru líka ósammála henni. Að bjóða upp á það að vera hér að kvöldi dags að ræða að það eigi að hafa sjálfbærni í öndvegi og hafa nokkrum klukkustundum fyrr samþykkt frumvarp um að leyfa aflmeiri togskipum — alveg óheftu afli, við skulum gæta að því, það eru engin mörk á því sem hún er að leyfa — að toga upp í fjörum landsmanna, er ósamræmanlegt. Ég verð bara að segja það, herra forseti, að ég hef skilning á því að hv. þingmaður treysti sér ekki til að verja þetta. Þetta er nefnilega óverjandi. Það er grátlegt, vil ég segja, að þingflokkur Vinstri grænna sé að setja sig í þessi spor, geta ekki einu sinni varið verk sín þegar verið er að ræða þau. Við ættum auðvitað að vera hér að ræða sjálfbærni og þá væru þeir stoltir að ganga fram. Jú, við lögðum hér fram góð frumvörp. En nei, þeir geta það ekki. Þeir segja: Þetta er fullrætt, ég er bara ósammála. Svona er það. Þetta lítur ekki vel út fyrir framboð sem kallar sig Vinstri græna að gera svona hluti og ég vona svo sannarlega að við förum að sjá breytt vinnubrögð hjá flokknum því þetta gengur ekkert.