Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:05]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef áhyggjur af þessari þráhyggju sem hv. þingmaður hefur gagnvart flokki mínum. Við erum Vinstri græn, ekki Vinstri grænir, svo það sé sagt. Ég hef áhyggjur af því að ég heyri hann mjög sjaldan talað um stefnu Flokks fólksins hér í pontu Alþingis. Hins vegar ræðir hann mjög mikið um stefnu Vinstri grænna, virðist alveg vera með það á heilanum. Það er í sjálfu sér gott að honum finnst stefna okkar frábær og ég vona að Flokkur fólksins taki hana upp því að hún er frábær. (Gripið fram í.) Við teljum okkur vera að fara eftir okkar stefnu. En það er eins og með margt annað sem hv. þingmaður leyfir sér að túlka út og suður. Svo er það auðvitað áhugavert að geta aldrei talað um það mál sem er til umfjöllunar hverju sinni. Hér er hv. þingmaður að tala um allt annað mál. (SigurjÞ: Sjálfbærni.) Hv. þingmaður talaði hér um annað mál og tengdi við eitt orð, sjálfbærni. Það er nú ósköp aumt að geta ekki fjallað um það sem í þessari matvælastefnu stendur og rætt það bara á þeim forsendum, virðulegi forseti. Ég leyfi mér að segja það að ég tel að þingmaðurinn eigi bara að einbeita sér að eigin flokksstefnu nema hann vilji taka upp stefnu Vinstri grænna, sem ég myndi telja að væri gott, og einbeita sér líka að því máli sem er á dagskrá hverju sinni. Það gæti farið ágætlega að gera það en vera ekki að troða alltaf öðrum málum inn í öll þau mál sem hér eru til umfjöllunar. Það virðist vera háttur hv. þingmanns reglulega hér í þingsal að koma einhverjum allt öðrum málum að í hverju einasta andsvari og ekki einu sinni það heldur í hverju einasta máli sem hann fjallar um, þá er hann að tala um einhver allt önnur mál. Þetta er eiginlega að verða dálítið skrautlegt.