Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:07]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að reyna að halda mig við málið sem við erum að tala um. Mig langar að byrja á því að þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir góða framsögu. Ég tók eftir einu í nefndarálitinu og þeim breytingartillögum sem gerðar eru í því. Það er dálítill mikill fókus í þingsályktunartillögunni á sjálfbærni og loftslagsmál og í kaflanum um þarfir neytenda stendur, með leyfi forseta: „Stuðlað verði að því að neytendur séu vel upplýstir um uppruna, innihald og kolefnisspor matvæla.“ Hins vegar segir í 5. lið breytingartillögu meiri hluta nefndarinnar, með leyfi forseta: „Liður 5.1 orðist svo: Bæta þarf upprunamerkingu matvæla svo að neytendur séu vel upplýstir um uppruna og innihald matvæla.“ Þarna er ekkert um kolefnissporið. Það hefur sýnt sig erlendis að þar sem þessu er bætt við, einhvers konar upplýsingum um kolefnisspor, þá bætir það oftast kauphegðun neytenda. Ég er sammála því sem hv. þingmaður nefndi um að við þurfum að sjálfsögðu að reikna þetta kolefnisspor rétt en mér finnst svolítið sorglegt að sjá að í stefnu til ársins 2040 sé ekki nefnt að hafa upplýsingar um kolefnisspor á öllum matvælum.