Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 113. fundur,  30. maí 2023.

matvælastefna til ársins 2040.

915. mál
[22:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er alveg hárrétt, við tókum þetta út og það var m.a. út af því sem ég sagði hér áðan. Það liggur fyrir að framleiðendur matvæla á Íslandi sitja ekki við sama borð, það eru evrópskar mælingar sem þeir þurfa að sitja undir sem gefa alls ekki rétta mynd af þeirra kolefnisspori. Ef vara kemur hér upp að landi með núll og byrjar svo að telja þá sitja þeir ekki við sama borð. Á meðan við stöndum frammi fyrir þessu fannst okkur kannski dálítið erfitt að gera kröfu um að kolefnisspor matvæla væri reiknað. Við vorum hins vegar öll sammála um það að þetta er framtíðin og þetta þarf að gera og ég hef trú á því að ráðherra muni gera það með einhverjum hætti. Hún hefur þegar sett af stað rannsóknir, þ.e. við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri eru komnar af stað rannsóknir sem leiða í þessa átt, að búa til reikningsaðferð út frá því hvað er verið að losa. Það er bara eitt verkefni af mörgum sem þarf að fara í til að ná utan um þetta. En fyrst og fremst þá verður maður að vera sanngjarn í umfjölluninni og allir sitji við sama borð þegar á að reikna þetta. Miðað við stöðuna eins og hún er í dag þá kæmu íslenskir matvælaframleiðendur alltaf miklu verr út heldur en matvæli sem eru flutt yfir hafið og það getur auðvitað ekki talist eðlilegt. Það er einungis þess vegna sem við töldum ástæðu til að taka þetta út því að þetta væri ekki sanngjarn útreikningur. En við erum öll meðvituð um það og ráðherrann líka að þetta er framtíðin og verður að koma inn í útreikninginn og, eins og ég sagði áðan, skannann sem þú setur upp að merkinu á matvörunni.